152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[21:00]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu og spyrja hv. þingmann um dálítið. Það er nefnilega þannig að þessi fjárlög sem hafa verið lögð hér fram eru innihaldslaus, þau eru full af villum, þau eru í rauninni drög. Þetta eru allt orð sem stjórnarliðar hafa verið að nefna og svo höfum við stefnuskrána þar sem eru fagrar yfirlýsingar og ýmislegt annað, en það virðist ekki vera í tengslum við það sem er í fjárlögunum og þar sem hv. þingmaður hefur mikla reynslu hér á þingi, hefur verið í fjárlaganefnd, hefur verið ráðherra, langar mig að vita: Hefur hv. þingmaður séð slík vinnubrögð áður á sínum tíma hér á hinu háa Alþingi?