152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[21:01]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil bara byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Hv. þingmaður er með fallegt nafn, Gíslanafnið, en ekki síður er það heiður að fá að eiga orðastað við hv. nýkjörinn þingmann, vel ættaðan úr Hafnarfirði og barnabarn Einars Olgeirssonar. Þetta er svolítið sérstakt og gaman og ég óska hv. þingmanni til hamingju með að vera kominn inn á þing. Ég er allt í einu minnt á að ég er einni, tveimur eða þremur kynslóðum eldri en hv. þingmaður. En varðandi vinnubrögðin við fjárlögin: Fjárlög hafa oft verið unnin með hraði og það hefur verið spenna en ég hef aldrei kynnst þessum vinnubrögðum, með þessum hætti. Við höfum upplifað hrunið, það var miklu erfiðara en það var samt klárað. Við erum ekki í spennitreyju þess erfiða tíma. Þess þá heldur þegar við horfum til þess að við erum að upplifa hér sömu ríkisstjórnina. Ég gæti skilið þetta, (Forseti hringir.) hæstv. forseti, ef við værum með algjöra endurnýjun á ríkisstjórn. En svo er ekki, (Forseti hringir.) þetta er því miður sama gamla ríkisstjórnin með sömu gömlu óvönduðu vinnubrögðin þegar kemur að þessu.