152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[21:05]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil jafnframt þakka góð orð. Ég lærði það snemma að flokkspólitíkin er bara smámál heima í Hafnarfirði miðað við íþróttapólitíkina sem þar er rekin og hv. þingmaður verður bara að virða það við mig að í þessi skipti vann FH Hauka, bara þannig að það sé sagt hér og bara síðast í vikunni.

En varðandi þjóðarhöllina. Það sem kemur mér á óvart er að hjá ríkisstjórn sem er búin að vera hérna í fjögur ár, hún hefur tögl og hagldir í því að stjórna, ekki bara setja niður stefnu heldur framfylgja henni, vanti efndir sem fylgja orðum. Ég man að á síðasta kjörtímabili og fyrir kosningar voru stór fyrirheit um að það ætti að gera eitthvað. Það hefur ekki enn þá verið gert. Ég sé fyrir mér að þjóðarhöllin verði hér á Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu. Það er mikill metnaður í sveitarfélögunum, ég skynja það. Þetta er samvinnuverkefni sveitarfélaga, ríkis og þeirra félaga sem standa að uppbyggingu íþróttanna. (Forseti hringir.) Það á að vera löngu búið að fara lengra með þetta mál en raun ber vitni og (Forseti hringir.) það er á ábyrgð þeirra stjórnarflokka sem enn sitja að við erum ekki komin lengra með þetta mál en ég vona að einhver framgangur verði í þessu. Við munum alla vega halda uppi þrýstingi hvað það varðar.