fjárlög 2022.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að koma inn á eitt stærsta mál íslenskrar þjóðar í dag, samfélagsmál að mínu mati, sem tengist náttúrlega réttlátri skiptingu auðlindanna okkar, hvernig rentunni af þeim er skipt á meðal þjóðarinnar, af því að henni er ekki endilega skipt á milli þjóðarinnar heldur á milli útgerðaraðila. Það er alveg skýr stefna okkar í Viðreisn, það er einn partur af grunnstefnu okkar, að við teljum að það eigi að setja á markað aðganginn að auðlindinni, þ.e. að kvótinn verði settur á markað, aflaheimildir. Það er alveg skýrt. Við teljum að þannig munum við ná sanngjörnu verði, eðlilegu verði og við höfum reiknað út að það er ekkert ólíklegt að með þeirri leið munum við a.m.k. tvöfalda það sem kemur í ríkissjóð. Við höfum lagt fram ákveðna tillögu um að þetta verði gert þannig að við gerum samninga við útgerðina og að þeir geti verið frá 20–25 ára og við bjóðum þá upp kannski 4–5% á hverju ári. Það mun dekka það sem við þurfum á að halda og þar með tryggja(Forseti hringir.) raunveruleg yfirráð þjóðarinnar yfir auðlindinni með því að fara annars vegar í tímabindingu samninga og hins vegar að fara markaðsleið, uppboðsleið á þeim hluta kvótans sem er boðinn upp.