fjárlög 2022.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir góð og skýr svör. Nú háttar þannig til að það eru afskaplega fáir flokkar hér á þingi, og þeir eru með afskaplega takmarkaðan þingstyrk, sem aðhyllast hugmyndir um að bjóða út kvóta og sækja þannig markaðsverð fyrir fiskinn í sjónum. Ég vil kannski beina þeirri spurningu að gamni til hv. þingmanns hvaða málamiðlanir hv. þingmanni myndu helst hugnast að styðja og taka þátt í. Við í Samfylkingunni lögðum í aðdraganda þessara kosninga fram hugmyndir um að þar til mótuð yrði og komin til framkvæmda einhvers konar uppboðsleið í sjávarútvegi yrði sú leið kannski farin að þrepaskipta veiðigjaldinu þannig að allra stærstu útgerðirnar myndu þá greiða sérstakt álag á veiðigjaldið. Það hefur verið reiknað út að þetta geti skilað 2–3 milljörðum. Er þetta eitthvað sem hv. þingmanni myndi hugnast?