fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég er þeirrar skoðunar að ríkisstjórnir, þingmeirihlutar, hafi ákveðið svigrúm til að fara í ákveðnar breytingar á Stjórnarráðinu. Það liggur í hlutarins eðli. En mér finnst verra þegar þetta er gert með þeim hætti sem nú er, að það er verið að setja allt upp í loft og síðan snýst þetta, þegar upp er staðið, um: Hvernig getum við púslað þessu saman þannig að við verðum 12 ráðherrarnir? Það þarf að bæta við einum ráðherra, segjum hlutina bara eins og þeir eru. Það þurfti að bæta við einum ráðherra til þess að koma til móts við kosningasigur Framsóknar. Framsókn þurfti fjóra ráðherra og það var bara farið í það að stokka upp Stjórnarráðið. Sumt er allt í lagi þarna, annað er bara út úr korti. Ég er hrædd um að ákveðnir málaflokka muni líða fyrir handahófskennda, hégómlega stundum, skiptingu á Stjórnarráðinu. Sumt er gott, ég ætla ekki að draga úr því, en annað er beinlínis varhugavert og mjög illa hugsað, (Forseti hringir.) alla vega ekki þaulhugsað. Mér finnst sjálfsagt að hafa þetta svigrúm, að stjórn hverju sinni hafi þetta svigrúm, (Forseti hringir.) en það þarf að vanda til verka. Þetta er ekki boðlegt eins og það er núna.