152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[21:17]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef kannski ekki komið þessu nægilega skýrt frá mér. Ég tel svigrúm fyrir ríkisstjórnina til að stokka aðeins upp í stjórnkerfinu ef það er á grunni faglegra sjónarmiða varðandi málaflokkinn, ekki bara út frá pólitíkinni. Hins vegar erum við að upplifa það í dag að verið er að breyta Stjórnarráðinu af því að Framsókn vantaði fjórða ráðherrastólinn, til þess að allir yrðu glaðir og myndu una sælir við sitt. Við höfum horft á það í gegnum tíðina að það hafa verið forsætisráðherrar sem hafa tekið t.d. hluta menningarmálanna eða þjóðmenningarinnar svonefndrar inn í forsætisráðuneytið. Svo færðist það aftur til baka. Síðan kom núverandi forsætisráðherra og tók jafnréttismálin að hluta til inn í sitt ráðuneyti. Bíddu, svo kemur kannski forsætisráðherra eftir fjögur ár sem hefur rosalegan áhuga á hafrannsóknum. Mun þá viðkomandi ráðherra taka hafrannsóknir inn í forsætisráðuneytið? Það er þetta sem ég er að tala um. Ekki bara að það sé áhugasvið ráðherra og það sé rosa gaman (Forseti hringir.) eða að einhverjir tilteknir einstaklingar vilji (Forseti hringir.) fá tiltekin málefnasvið til sín, heldur verðum við að segja: Já, við erum að fara í breytingar (Forseti hringir.) af því að það þjónar samfélaginu betur, af því að við ætlum að þjónusta betur, af því við ætlum að sækja fram á sviði nýsköpunar, þróunar, (Forseti hringir.) loftslagsmála eða hvað það er, en ekki til að sætta einhverja pólitíska kosningasigra.