152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[21:18]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir innlegg hennar hér í kvöld. Mig langaði aðeins að ræða betur við þingmanninn um samskipti ríkis og sveitarfélaga og almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Ég tek undir orð þingmannsins og fagna mjög að það eigi að byggja upp Tækniskólann í Hafnarfirði og tel það mikið framfaraskref og eðlilegt. Ég vek athygli forseta og annarra í þingsal á því að það er jafn langt frá Reykjavík til Hafnarfjarðar og frá Hafnarfirði til Reykjavíkur. Mig langar til þess að inna þingmanninn betur eftir því sem hún var að segja um borgarlínuna, sem ríkisstjórnin kallar reyndar hágæða almenningssamgöngur. Er þingmaðurinn sammála mér um að þar séu tiltölulega metnaðarlausar áætlanir á ferðinni hjá ríkisstjórninni?