152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[21:19]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, það veldur mér ákveðnum áhyggjum, hafandi Vinstri græna innan ríkisstjórnarinnar, að þeir hafi ekki náð að spyrna betur við fótum. Ég vil kalla þetta að það sé komið ákveðið heilkenni inn í hina tvo íhaldsflokkana, það er hægt að kenna þetta heilkenni við Miðflokkinn eða áherslur þeirra sem eru andsnúnir borgarlínunni og eru bara heiðarlegur í því, eins og Miðflokkurinn er bara heiðarlegur í því og er á móti borgarlínunni út af ákveðnum sjónarmiðum og forsendum. En hinir eru ekkert sérstaklega heiðarlegir, eiga mjög erfitt með að segja orðið borgarlína. Ég hefði viljað sjá miklu meiri metnað í ríkisstjórn sem er undir forystu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í þeim málum sem snerta borgarlínu. Ég hefði frekar viljað sjá flýtingu framkvæmdarinnar í fjárlögunum eða í stjórnarsáttmála heldur en þetta orð, loðmulluna sem er sett fram með þessu. Það vantar allan metnað.