fjárlög 2022.
Hæstv. forseti. Já, þar erum við þingmaðurinn einmitt sammála, það vantar metnað. Það kemur m.a. fram í því að ekki á að hækka opinber framlög og fjárfestingu í borgarlínunni. Ríkið ætlar ekki að leggja meira af mörkum sem hefði verið svo rakið og einfalt að gera til að flýta framkvæmdum við borgarlínuna, byggja upp traustari almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu og auðvitað vinnur það algjörlega með því að reyna að ná loftslagsmarkmiðunum. En það er, eins og hv. þingmaður bendir á, kannski merki um að þar hafi Vinstrihreyfingin – grænt framboð orðið undir í áherslum í þessari ríkisstjórn af því að nú er þetta allt saman komið til Framsóknarflokksins, sem vissulega segist vera grænn en stendur ekki við það þegar kemur að almenningssamgöngunum.