fjárlög 2022.
Virðulegi forseti. Ég get tekið undir allt sem hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir sagði hér. Ég vil líka draga það fram í heildarsamhengi og kom inn á það fyrr í dag að á síðustu árum eru fjárfestingar undir meðaltali í innviðum, þar með talið samgöngum. Það hefur orðið pínu aukning á síðasta ári en nú á aftur að slakna og það er áhyggjuefni. Ég velti fyrir mér: Er það kannski hræðsla við að það fari of mikið í borgarlínuna? En það er arðbær fjárfesting í innviðum til lengri tíma litið. Þegar fólk er að tala hér um andstöðu sína gagnvart borgarlínu er það ekki að skoða heildarmyndina, hvaða áhrif slíkt fyrirkomulag sem tengist borgarlínu hefur m.a. á skipulag sveitarstjórna, á lífsgæði íbúa, á loftgæði líka og loftslagsmálin. Þegar þetta allt er tekið saman þá skiptir máli að þessari framkvæmd og þessum fyrirheitum verði fylgt áfram af festu og metnaði.