152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[22:16]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Halldóru Mogensen fyrir prýðisgóða ræðu. Það eru ákveðin atriði sem mig langar að koma inn á í tengslum við ræðu hv. þingmanns. Í ræðunni var fyrst og fremst verið að tala um getu öryrkja til að koma inn á vinnumarkaðinn og njóta í því samhengi frítekjumarks sem er hærra en það sem er viðhaft í dag. Mig langar til að tengja þetta saman, aðstæður öryrkja og aðstæður eldri borgara. Við í Miðflokknum höfum haft töluvert miklar skoðanir á því með hvaða hætti væri hægt að bæta hag eldri borgara sem geta og vilja vinna. Ég held að sá hópur öryrkja sem er í þeirri stöðu, sem bæði getur og vill vinna, hvort sem það er til að bæta tekjustöðu sína eða til að komast út og geta verið úti í hefðbundnu samfélagi, ég held að sá vilji sé mjög ríkur hjá báðum þessum hópum.

Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort sýn Pírata sé á pari, ef svo má segja, hvað varðar stöðu aldraðra annars vegar og öryrkja hins vegar eða hvort horft sé til mismunandi stöðu þessara hópa. Ég held að í öllu falli — það væri ekki bara það að virkja þessa hópa meira í samfélaginu heldur væri það hverjum og einum einstaklingi sem vill og getur til gagns að fá að vinna eða gera hvað sem viðkomandi telur til bóta gagnvart sér og samfélaginu. En kerfið (Forseti hringir.) eins og það er í dag letur menn til þess. Spurningin til hv. þingmanns er: Eru þessir hópar lagðir að jöfnu? (Forseti hringir.) Ef ekki, í hverju felst það þá?