152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[22:18]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ef við förum aðeins aftur í fyrrverandi félagsmálaráðherra — nú eru þessi ráðherranöfn og embætti öll breytt og ég get ekki sagt nákvæmlega hvað þetta heitir allt saman núna — þá stóð félagsmálaráðherra sig ágætlega á síðasta kjörtímabili í því að endurskoða barnaverndarmál. En eins og ég sagði í ræðu áðan þá stóðu eftir hópar fólks sem hann bar ábyrgð á, sem hann brást algjörlega á því kjörtímabili. Þar á meðal var eldra fólk og öryrkjar. Það kom út skýrsla nýlega þar sem er fjallað um að öryrkjar búi við slæma andlega heilsu. Átta af hverjum tíu öryrkjum eiga erfitt með að ná endum saman og svipað hlutfall hefur neitað sér um heilbrigðisþjónustu. Það er mikill meiri hluti öryrkja sem býr við slæma andlega heilsu og finnur fyrir félagslegri einangrun og margt af því sama á við um eldra fólk. Ég get rétt ímyndað mér hvernig þetta er núna eftir Covid. Það er líka eitthvað sem við þurfum að skoða mun betur, hvaða áhrif aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa haft á þessa hópa sem voru þegar í mjög viðkvæmri stöðu þegar kemur að andlegri heilsu og fátækt. Hvað mun aðgerðaleysi í þessum málaflokki kosta okkur til lengri tíma litið? Þetta er ekki bara kostnaður í peningum heldur í mannlegri þjáningu. Ég hef áhyggjur af því að við tökum alls ekki nægilega vel utan um þetta fólk. Við þurfum að gera miklu betur. En ég er alveg á því, og ég hélt langa ræður um borgaralaun, að hvort sem það er eldra fólk, öryrkjar eða aðrir þá eigum við að leysa þau úr þeim skerðingum og því bótafátæktarfangelsi sem þau eru í. Við eigum að tryggja öllum skilyrðislausa grunnframfærslu svo að fólk sé frjálst til að lifa lífinu eins og því sýnist.