fjárlög 2022.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Svona til að halda áfram þar sem hv. þingmaður skildi við varðandi borgaralaunin þá hef ég haft ákveðnar efasemdir um hluta þeirra útfærslna sem þingflokkur Pírata hefur lagt til. En ég held að burt séð frá pólitískum skoðanaágreiningi þurfum við að finna leið til að hver og einn einstaklingur hafi tækifæri til að gera það besta úr því sem í honum býr.
Í því samhengi langar mig að rifja upp fréttir sem bárust hér í haust, u.þ.b. sem skólar voru að fara af stað. Þá voru, ef ég man rétt, annaðhvort 700 eða 800 einstaklingar sem óskuðu eftir því að hefja iðnnám sem fengu ekki tækifæri til þess. Það var algjörlega makalaus staða í kjölfar þess að ríkisstjórnin á fyrra kjörtímabili, sem er nú hin sama, hafði barið sér ítrekað á brjóst gagnvart skilningi á mikilvægi iðnmenntunar og því að það yrði að gera meira úr iðnmenntun samanborið við bóknám og gefa þeim tækifæri til að sinna slíku sem það vildu gera.
Mér sýndist þetta á öllu, svona heilt yfir, hafa klúðrast býsna illa. Það er eiginlega alveg ótrúleg staða að í 360.000 manna samfélagi séu 800 einstaklingar sem komast ekki í námið sem þeir vilja fara í á sama árinu. Þó að þetta sé kannski ekki alveg beinn afleggjari af umræðunni um skilyrðislausa grunnframfærslu þá er þetta (Forseti hringir.) engu að síður þeirrar gerðar að þeir sem fá ekki að njóta þess náms eða stunda það nám (Forseti hringir.) sem þeir vilja sinna eru líklegri til að upplifa einhvers lags tilgangsleysi (Forseti hringir.) með lífi sínu. Ég vildi gjarnan fá að heyra hver afstaða hv. þingmannsins er til þessa.
(Forseti (BÁ): Forseti minnir ræðumenn á að í andsvörum er takmarkaður tími.)