fjárlög 2022.
Forseti. Ég tek bara heils hugar undir með hv. þingmanni. Fyrir mér snýst hlutverk okkar hérna um að skapa einhvers konar jarðveg fyrir fólk til að geta, ef ég nota þá líkingu aftur, bara vaxið og dafnað á eigin forsendum. Við eigum því að passa upp á að öll kerfin sem við byggjum séu hönnuð til að þjóna þörfum fólksins í landinu. Ef það er ákall eftir frekari menntun í einhverri grein þá verðum við auðvitað að bregðast við á þann hátt að námið sé aðgengilegt fyrir þá sem vilja sækja sér þá menntun. Það skiptir ofboðslega miklu máli, sérstaklega ef við erum að horfa til þeirra tæknibreytinga sem eru að verða í samfélaginu. Við tölum um fjórðu iðnbyltinguna og hvernig við tryggjum að allir hafi einhvern veginn sömu réttindi í framtíðinni og við höfum verið að byggja upp í áratugi í dag og til lengri tíma en það. Með öllum þessum tækniframförum munu störf hverfa. Hvers konar menntun þurfum við á að halda? Hvað tekur við? Það er svo mikil óvissa að það skiptir miklu máli að við séum ekki að hugsa um menntun sem einhvers konar tól eða verkfæri fyrir vinnumarkaðinn. Við verðum að hugsa þetta út frá þekkingunni sjálfri og gefa fólki tækifæri til þess einmitt að öðlast einhvers konar innri tilgang. Það hlýtur að vera það sem þetta snýst um, að fólk finni fyrir tilgangi í lífinu. Það er það sem drífur svo áfram gleðina og hamingjuna og velgengnina í lífinu, að það finni fyrir tilgangi. Hluti af því er að geta sótt sér (Forseti hringir.) þau tækifæri sem hver og einn vill og brennur fyrir og hefur áhuga á, óháð því hvaða vinna tekur við eða hvað fólk gerir eftir að það hefur menntað sig.