fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég hjó eftir því að hv. þingmaður talaði um að fjárfesta í fólki. Þar er ég alveg sammála hv. þingmanni. Ég man eftir því að þegar við hv. þingmaður sátum í þingmannanefnd um málefni barna á síðasta kjörtímabili þá lögðum við í sameiningu áherslu á að við fengjum hagfræðing til að greina hvað það myndi kosta samfélagið að gera ekki það sem við vorum að vinna saman í. Það var fallist á að fara í það að meta ábata af því að fjárfesta í börnum, meta hagnaðinn fyrir íslenskt samfélag, fjárhagslegan hagnað. Það var magnað að fylgjast með því að hægt væri að setja slíkan verðmiða á svona verkefni og vegna þess að hv. þingmaður talaði um að fjárfesta í fólki þá ákvað ég að leita í skjalinu, þessu bráðabirgðafjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, sem vonandi verður líka til bráðabirgða, og sá að þar kemur orðið fjárfestingarátak 39 sinnum fyrir, en þau fjárfestingarátök snúast aldrei um að fjárfesta í fólki, því miður, af því að öllum finnst sjálfsagt mál að setja peninga í að fjárfesta en það eru útgjöld þegar við erum að þjónusta fólkið okkar. Er hv. þingmaður sammála þessu?