fjárlög 2022.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður hittir naglann á höfuðið með orðunum: Halda vinnunni áfram. Það lítur nefnilega út fyrir, eins og ég nefndi áðan, að hæstv. forsætisráðherra líti svo á að vinnan sé ekki hafin, það þurfi að hefja þessa vinnu. Aftur angra þær mig þessar spurningar sem mér finnst ég aldrei hafa fengið svör við, sem eru: Hvers vegna er þetta vandamál? Hvers vegna er ekki löngu búið að ganga frá þessu? Þetta eru að langstærstu leyti hlutir sem við getum verið sammála um. Auðvitað er ekki hægt að vinna einhver drög áfram. Fólk hefur kannski einhverjar athugasemdir við þessi drög og ég skil það vel. Ég myndi sjálf ekki samþykkja drög stjórnlagaráðs óbreytt. En það hafa þegar verið gerðar ýmsar breytingar. Það hefur heilmikil vinna verið unnin og þessi vinna verður að halda áfram. Ég skil ekki hvers vegna við getum ekki átt þetta samtal áfram, hvers vegna Sjálfstæðisflokkurinn er ekki til viðræðu um þetta mál. Ég átta mig ekki á því. Hingað til hafa þau haldið því fram að stjórnarskráin sé bara fín, ágæt að mestu leyti eins og hún er. Þá er áhugavert að benda á, að ég held, að 46. gr. stjórnarskrárinnar hafi hvergi verið nefnd í umræðum um það sem nauðsynlega þarf að breyta í þessari stjórnarskrá og við getum verið sammála um að séu úrelt ákvæði. Og hvað gerist? Nú fáum við á okkur dóm Mannréttindadómstóls Evrópu sem hefði ekkert þurft að gerast. Þetta hefði ekki þurft að vera svona gríðarlega mikið klúður þó að sannarlega hafi önnur atriði valdið því að þetta fór ekki vel upphaflega. En það er alveg ljóst (Forseti hringir.) að það er engin leið að halda því fram lengur að þessi stjórnarskrá sé bara fín og góð og gild nákvæmlega eins og hún er.