fjárlög 2022.
Virðulegi forseti. Bara þannig að aðeins sé sagt frá vinnu formanna á síðasta kjörtímabili lá alveg ljóst fyrir að mati forsætisráðherra og okkar sem vorum í vinnunni að við þyrftum ekki frekara sérfræðingsálit, af því að það liggur allt fyrir, það er búið að fara yfir þetta, að það þyrfti pólitíska afstöðu hér á þingi, að við í þessum þingsal gætum tekið afstöðu til þeirra tillagna sem lágu fyrir. Það var stoppað af meirihlutaflokkunum. Þau bera ábyrgð á því að við náðum ekki að taka pólitíska umræðu um auðlindaákvæðið. Þar stendur hnífurinn í kúnni.
Vinstri græn, sem voru einu sinni vinstri og einu sinni græn og eru það ekki lengur, hafa einfaldlega tekið að sér verkstjórn í ríkisstjórninni við að framfylgja hugmyndafræði, stefnu og hugsjónum íhaldsflokkanna tveggja, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Þegar upp er staðið snýst þetta um hagsmuni. Það má ekki hrófla við auðlindum landsins með almennilegu auðlindaákvæði, með inntaki fyrir þjóðina. Það má ekki. Sett á ís. Má ræða jafnt vægi atkvæða? Nei. Þrátt fyrir að í rökræðukönnuninni í vinnu formanna flokkanna hafi ítrekað komið fram ákall um það og ríkur vilji þjóðarinnar að á því verði tekið. Nei, það er sett á ís. Það ruggar of mikið bátnum. Má ræða framsalsákvæðið, um að þjóðin fái einfaldlega tækin og tólin í stjórnarskrána til að ráða sinni eigin framtíð og hvar hún telji hagsmunum sínum best borgið í alþjóðasamstarfi? Nei, það ruggar of mikið bátnum. Það er of mikið hagsmunaruggudugg. Sett á ís. Þetta er óþolandi og þetta er það sem þessi ríkisstjórn gengur út á. Það er hægt að hafa fullt af fallegum krúsidúllum í stjórnarsáttmála, mál sem við viljum taka undir og vera róttækari í, eins og í loftslagsmálum, í velferðarmálum, vera ábyrgari í fjármálum. En þegar upp er staðið (Forseti hringir.) snýst þetta einmitt um þessa hagsmuni. (Forseti hringir.) Það verður ekki tekið á stórum grundvallarhagsmunum þjóðarinnar meðan þessi ríkisstjórn situr.