fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sem var býsna góð og mér þykir óskaplega vænt um innihald þessarar ræðu. En talandi um peninga, við erum hér að ræða fjárlög og hvort við höfum efni á hinu og þessu, hvort við höfum efni á heilbrigðiskerfi sem getur þjónustað íbúa landsins, hvort við höfum efni á að losa fólk úr klóm sárafátæktar, hvort við höfum efni á að laga ónýta vegi hringinn í kringum landið, byggja nýjar geðdeildir og lina þjáningar þeirra sem eiga um sárt að binda. Talandi um peninga og talandi um stjórnarskrá: Telur hv. þingmaður að við gætum mögulega haft efni á að reka öflugra, stöndugra, kröftugra samfélag ef við myndum laga auðlindaákvæðið í stjórnarskránni, ef við fengjum sanngjarna rentu af sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar? Telur hv. þingmaður að þarna liggi svarið við spurningunum sem blasa við í bráðabirgðarfjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, Bjarna Benediktssonar, Sigurðar Inga Jóhannssonar, að einmitt þarna liggi svarið og að þangað til að þetta verði leyst þá munum við einhvern veginn halda áfram í þessum barningi?