152. löggjafarþing — 5. fundur,  4. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[10:30]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Forseti. Í gær ræddi ég hvernig ríkisstjórnin skildi eftir þá hópa sem verst urðu úti í Covid-kreppunni en ég ræddi ekki nógu ítarlega áhrifin sem Covid-kreppan hefur haft á innflytjendur á Íslandi. Eins og við vitum voru erlendir ríkisborgarar um tíma 40% allra atvinnulausra á Íslandi, er atvinnuleysi stóð sem hæst, þrátt fyrir að vera aðeins 15% þjóðarinnar. Það sýndi okkur þann mikla ójöfnuð sem ríkti þegar kom að því að verða fyrir atvinnumissi í Covid-kreppunni. Við vitum það nú þegar, virðulegi forseti, að það er alls ekki nóg búið að gera til að koma til móts við þennan hóp hér á Íslandi. Það er ekki búið að gera nóg til að bregðast við brunanum á Bræðraborgarstíg, til að tryggja að slíkur harmleikur endurtaki sig ekki. Það er ekki búið að gera nóg til þess að koma fólki sem býr í óíbúðarhæfu húsnæði, sem býr í atvinnuhúsnæði, og er oft komið upp á náð og miskunn atvinnurekanda sinna, í almennilegt, mannsæmandi húsnæði. Mig langar að vitna aftur í skýrslu ASÍ, virðulegi forseti, um ójöfnuð og Covid en á bls. 10 kemur fram, með leyfi forseta:

„Ójöfnuður er í senn áhrifaþáttur í Covid-kreppunni og afleiðing hennar. Ójöfnuður eða stéttaskipting er áhrifaþáttur í þeim skilningi að láglaunahópar, ekki síst kvenna og erlendra ríkisborgara, hafa verið í framlínu hinna samfélagslegu viðbragða við faraldrinum innan heilbrigðis-, velferðar- og menntakerfisins. Faraldurinn hefur í senn gert störf þeirra erfiðari, til að mynda vegna lokana, aukins álags og annarra sóttvarnaráðstafana, auk þess sem þessir hópar hafa eðlis starfa sinna vegna verið í meiri smithættu en flestir aðrir. Tekjufall og langvarandi atvinnuleysi tugþúsunda er augljóslega fallið til að auka ójöfnuð í samfélaginu í efnahagslegu tilliti. Jafnframt er mikilvægt að horfa til félagslegrar stöðu þeirra hópa sem fyrir mestum áföllum verða og líða fyrir minni menntun, tungumálaörðugleika eða annars konar jaðarsetningu. Hollt er að minnast þessa þegar fjallað er um áhrif kreppunnar á aðflutt launafólk.“

Þetta tel ég einmitt mikilvæga áminningu fyrir okkur. Þetta, virðulegi forseti, vil ég meina að sé ekki að finna með nægilega sterkum hætti í þessu fjárlagafrumvarpi; að það standi til að vinna gegn þessum ójöfnuði, að það standi til að styrkja stöðu aðflutts verkafólks hér á Íslandi, að það eigi að gera eitthvað til að koma því út úr þeim húsnæðisvanda sem það býr við, húsnæðisvanda sem er á allt öðrum skala en þeim sem innfæddir búa við. Við horfum upp á jaðarsetningu þess fólks sem dreif áfram hagvöxtinn okkar, sem hélt okkur gangandi þegar vel áraði. En um leið og skórinn kreppti mátti láta þau fara, mátti koma þeim í langtímaatvinnuleysi. Því var lítið fyrir að fara að ríkisstjórnin sinnti því að koma til móts við þennan stóra hóp í íslensku samfélagi sem heldur hagkerfinu okkar gangandi þegar vel árar. Ég vil taka undir það sem fram kemur í þessari skýrslu, með leyfi forseta, á bls. 11, að það megi segja að „faraldurinn hafi dregið fram í sterkari litum þann ójöfnuð sem fyrir er í samfélaginu og aðstöðumuninn sem efnahagur, atvinnuöryggi, uppruni, tengslanet og fleiri mótandi þættir skapa. Því veldur áhyggjum að ætla má að áhrif faraldursins og þrenginganna sem hann hefur í för með sér verði langvarandi og hefur verið rætt um Covid-áratuginn í því samhengi.“

Mig langar að ræða aðeins um þennan Covid-áratug, virðulegi forseti, og hvers vegna er svo mikilvægt að við förum í kröftuga innviðafjárfestingu, að við styrkjum opinberu kerfin okkar, að við förum í stórátak í geðheilbrigðismálum og að við notum fjárfestingar hins opinbera til að fjárfesta í grænum innviðum til að takast á við loftslagsvána. Allt eru það leiðir til að takast á við það sem margir fræðimenn óttast; að það verði Covid-áratugur, þ.e. langvarandi og alvarleg félagsleg áhrif af Covid-faraldrinum. Fólk varð fyrir einangrun, atvinnumissi, tekjumissi, réttindaskerðingu og þessum veikindum. Fræðimenn óttast að þetta muni leiða af sér stóraukinn ójöfnuð, miklu meiri hættu á alvarlegum geðsjúkdómum og langvarandi félagsleg áhrif. Þess vegna eru svo mikil vonbrigði að sjá hvað er mikið metnaðarleysi í þessu fjárlagafrumvarpi og þeirri fjármálaáætlun sem hún byggist á gagnvart opinberum fjárfestingum, gagnvart átaki í geðheilbrigðismálum, gagnvart þjónustu við öryrkja og aldraða, á öllum þeim félagslegu sviðum þar sem allar alþjóðlegar stofnanir ítreka við okkur að mikilvægt sé að styrkja þessa innviði, ekki veikja þá þegar harðnar á dalnum.

Virðulegi forseti. Ég sé að ræðutími minn er að klárast og ég hafði óskað eftir að fá utanríkisráðherra til andsvara við mig. Ég velti fyrir mér hvort það hafi þá ekki tekist.

(Forseti (BÁ): Skilaboðum var komið á framfæri við hæstv. utanríkisráðherra en hún er ekki komin. )

Hún er ekki komin, allt í lagi. Ég ætla samt að drepa á því sem ég ætlaði að ræða við hæstv. utanríkisráðherra. Hún kemur þessu vonandi á framfæri til mín á annan hátt fyrst hún gat ekki mætt hingað í þingsal. En það er nú svo.

Ég vildi venda mínu kvæði í kross. Ísland fer með formennsku í Evrópuráðinu á komandi ári og ég sit í Íslandsdeild Evrópuráðsins og veit hversu mikilvæg og stór stund það er fyrir Ísland í þessu mikilvæga ríkjasamstarfi. Ég sé í fjárlögunum að til stendur að veita aukalega 23 milljónir á fjárlögum í að undirbúa formennsku Íslands í Evrópuráðinu, 23 milljónir. Á sama tíma lækkar framlag Íslands til Evrópuráðsins úr 76 milljónum í 70 milljónir. Ég vildi spyrja hæstv. ráðherra út í þetta misræmi. Hvers vegna lækkum við venjubundið framlag einmitt árið sem við tökum við formennsku? Er virkilega nóg að eyða 23 milljónum í formennsku Íslands í ráðherraráði Evrópuráðsins þegar okkur finnst allt í lagi að eyða 130 milljónum í að borga með eftirliti með erlendum sjóðum á Íslandi? Þeir þurfa að borga eftirlitsgjald en eftirlitsgjaldið dugar ekki fyrir eftirlitinu sem fjármálaeftirlitið þarf að hafa með þeim þannig að við borgum með þeim, 127 milljónir. Á þessum risavaxna vettvangi 47 aðildarríkja Evrópuráðsins, þar sem samstarf er um mannréttindi, lýðræði og réttarríkið, þar sem Ísland getur komið sér rækilega á framfæri í samfélagi þjóða, þar sem Ísland getur sett mikilvæg mál, hér nefni ég jafnréttismál og réttindi hinsegin fólks, t.d. kynsegin fólks, á dagskrá, ætlum við að eyða 23 milljónum, eiginlega 17 ef við tökum mið af þeirri lækkun sem ég var að vísa í, virðulegi forseti. En ég virðist því miður ekki ætla að fá svör við þessum spurningum mínum í þessari ræðu a.m.k. Kannski fáum við tækifæri til að ræða þetta aftur í 2. umr. Þar væntum við þess að komnar verði einhverjar jákvæðar breytingar á þessu fjárlagafrumvarpi þar sem það liggur ekki enn þá fyrir nákvæmlega hvað það inniheldur þar sem búið er að boða alls konar breytingar á því án þess að við vitum nokkurn skapaðan hlut um hvaða breytingar það eru. Það er að vissu leyti ákveðin málfundaræfing, virðulegi forseti, að ræða hér frumvarp sem var eiginlega orðið úrelt um leið og það kom hingað inn.