fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir yfirferðina. Mig langar að spyrja hana, af því að hún er öllum hnútum kunnug í Evrópuráðinu, aðeins út í mikilvægi þess samstarfs og hvort það skipti máli og að hvaða leyti að við séum í ríkulegu alþjóðasamstarfi. Nú erum við auðvitað pínulítil eyþjóð og maður veltir fyrir sér þegar þarf að velja og hafna hvar við setjum styrk okkar og í hvað við setjum fjármuni okkar, sem eru auðvitað takmörkuð auðlind. Ef hún gæti farið aðeins yfir það hvaða hlutverki við sem smáríki gegnum á þessu sviði, í Evrópuráðinu, og hvaða máli það skiptir að við séum þarna yfirleitt. Heyrist í okkur? Sinna íslensk stjórnvöld þessu af nægilegu þreki, þannig að við séum sýnileg þar sem við eigum sæti? Ef hún gæti farið örlítið yfir þetta og hvað hún sér fyrir sér að kunni að skerðast við það að fjármunir skerðist til þessa einstaka verkefnis.