fjárlög 2022.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Sæti okkar við borðið í Evrópuráðinu er mjög mikilvægt, sér í lagi vegna þess að við erum ekki aðilar að Evrópusambandinu. Þá hefði ég haldið að smáþjóð eins og Ísland, sem á mikið undir alþjóðasamstarfi, sæi hag sinn í því að vera með sterka rödd í Evrópuráðinu sem er stórkostlegur samstarfsvettvangur 47 ríkja í Evrópu um mannréttindi, lýðræði og réttarríki. Eflaust er frægasta afurð þessa samstarfs mannréttindasáttmáli Evrópu, sem við þekkjum öll nokkuð vel, og dómstóllinn sem dæmir um brot á honum. En það er fjöldamargt annað sem kemur frá Evrópuráðinu, eins og Evrópunefnd og varnir gegn pyndingum, GRECO o.fl. sem við reiðum okkur á þegar við erum að meta gæði stjórnsýslu okkar, þegar við erum að meta gæði stjórnskipunar okkar. Feneyjanefndin er t.d. gott dæmi um fallega afurð frá Evrópuráðinu sem aðstoðar ríki við að styrkja réttarríkisrétt og skoða stjórnskipan sína í samhengi við góða stjórnarhætti.
Formennska í ráðherraráðinu er ábyrgðarhlutverk sem fylgir því að rétt eins og allar hinar 47 þjóðirnar höfum við sæti við borðið sem er jafngilt öllum hinum atkvæðunum. Það eru 47 utanríkisráðherrar í Evrópuráðinu, þ.e. í ráðherraráði Evrópuráðsins, og atkvæði okkar þar gildir alveg jafn sterkt og atkvæði allra annarra. Það er ekkert svona Norðvesturkjördæmi sinnum tveir gagnvart Suðvestur eða eitthvað svoleiðis þar, heldur höfum við einfaldlega þetta eina atkvæði. Við munum fara með formennsku í ráðherraráðinu, sem er mjög stórt „platform“, svið fyrir okkur til að sýna fram á getu okkar (Forseti hringir.) í mannréttindamálum. Mér finnst við alls ekki nógu metnaðarfull í að byggja undir það stóra hlutverk.