152. löggjafarþing — 5. fundur,  4. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[10:45]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Mig langar að spyrja hv. þingmann út í einmitt þetta með þessa skýru rödd og þessar skýru áherslur, hvort við nýtum þá rödd nógu vel, hvort við tökum ákvörðun um það sameiginlega hvaða áherslupunktum við viljum halda á lofti. Er sú ákvörðun tekin einhvers staðar sameiginlega eða hver er það í rauninni sem tekur ákvörðun um það hvaða þyngd er í orðum okkar og hvaða hlutir það eru sem við viljum leggja mesta áherslu á fyrir Íslands hönd?

Ég er sammála hv. þingmanni að sá stuðningur sem við höfum fundið gagnvart mannréttindum, gagnvart lýðræði og stjórnskipan er ekkert smáræði. Það skiptir okkur ótrúlega miklu máli að fá þetta aðhald og ég held að það hafi verið risaskref fyrir okkur og sé risaskref fyrir okkur að fá að taka þátt í þessu með siðuðum þjóðum. En það er spurning hvernig okkur gengur að vinna úr þeim ábendingum sem koma að utan.