fjárlög 2022.
Hæstv. forseti. Ætli það sé ekki utanríkisráðuneytið sem vinnur þær áherslur. En ég vil bara lýsa því yfir hér með að ég er boðin og búin til að aðstoða við það eftir fremsta megni. Ég hef fimm ára reynslu af því að sitja á Evrópuráðsþinginu. Vegna þess að hv. þingmaður var að tala um hvort rödd okkar heyrðist nógu skýrt þá vildi ég koma því á framfæri að við eigum þrjú sæti í Evrópuráðsþinginu af 340, eitthvað svoleiðis. En við eigum líka þrjú varasæti sem við notum aldrei. Flestar aðrar landsdeildir senda líka varamenn sína á Evrópuráðsþingið vegna þess að þar geta þeir gegnt öllum störfum aðalmanna nema þá helst að greiða atkvæði akkúrat þegar aðalmaðurinn er inni í sal. Það eru margar nefndir í Evrópuráðsþinginu og þær funda samtímis á meðan þingvikan stendur yfir. Þá er gott að vera með varamenn til að geta dekkað allar nefndir, en þetta hefur íslenska þingið aldrei verið tilbúið að greiða fyrir. Íslenska þingið hefur líka sett kvóta á hversu marga nefndarfundi íslenskir þingmenn geta sótt á vegum Evrópuráðsþingsins þrátt fyrir að það sé andstætt samstarfssamningnum við ráðið. Mér hefur líka þótt það miður, vegna þess að það þýðir að erfiðara er fyrir íslenska þingmenn að taka að sér ábyrgðarhlutverk í Evrópuráðsþinginu en þingmenn úr öðrum landsdeildum þar sem borin er virðing fyrir þeim reglum sem settar eru á Evrópuráðsþinginu um samstarf á milli þjóðanna.
Það var mjög ánægjulegt að opnuð var sendiskrifstofa Íslands. Ég held það hafi verið fyrst í fyrra. Við vorum eina landsdeildin sem ekki var með sendinefnd í Strassborg gagnvart Evrópuráðsþinginu, þeim stóra vettvangi. Þannig að það er a.m.k. það sem er komið af stað. Það eru vissulega jákvæð teikn á lofti en það er ótrúlegt að það hafi þurft að líða langur tími þangað til við fengum alvörusendinefnd til Strassborgar og við gætum gert miklu betur þegar kemur að Íslandsdeildinni, svo mikið er víst.