152. löggjafarþing — 5. fundur,  4. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[10:49]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur fyrir ágæta ræðu. Ég ætlaði að koma inn á atriði sem ég ætla að leyfa mér að færa yfir í seinna andsvar, bara í ljósi umræðu hér í andsvörum við hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur um atkvæðavægi í ráðherraráðinu, Evrópuþinginu, þar sem ég skildi það þannig að hv. þingmaður teldi það til mikilla bóta að það væri jafnt vægi ráðherra sem sæti við það borð. En mér reiknast svo til í mjög grófum hugarreikningi að það sé um tuttugufalt atkvæðavægi sem ráðherra Íslands hefur þarna miðað við það sem væri meðalvægi atkvæða. Þá er ég ekki farinn að bera hann saman við t.d. fulltrúa Þjóðverja eða Frakka. Er sem sagt betra að þetta atkvæðavægi sé í ráðherraráði Evrópuráðsþingsins en t.d. í samanburði milli Norðvesturkjördæmis og Suðvesturkjördæmis, af því að það var nefnt sérstaklega áðan?