fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Nei, mér finnst það ekkert betra. Mér finnst mjög slæmt að Norðvesturkjördæmi sé með tvöfalt atkvæðavægi á við Suðvesturkjördæmi, mér finnst það ólýðræðislegt. Mér finnst ótrúlega skrýtið að það liggi fyrir fyrir kosningar að kjósendur Norðvesturkjördæmis hafi tvöfaldan atkvæðisrétt á við kjósendur Suðvesturkjördæmis en það eigi ekki að breyta því fyrr en eftir kosningar, það eigi ekkert að gera í því fyrr en eftir kosningar. Mér finnst þetta mjög furðuleg framkvæmd og ólýðræðisleg. Að Ísland hafi tuttugufalt atkvæðavægi miðað við höfðatölu í ráðherraráði Evrópuráðsins, svo við höldum því til haga, held ég að komi bara með aðild að Evrópuráðinu. Þessi vettvangur er alla vega þannig að það er bara eitt atkvæði á haus í þessu ráðherraráði, þ.e. ráðinu þar sem allir utanríkisráðherrar eiga sæti. Þetta er framkvæmdarvald Evrópuráðsins. Ef við gæfum okkur að ríkisstjórnin myndi einhvern tímann greiða atkvæði um eitthvað sín á milli þá væri það væntanlega líka þannig að kjördæmastærð hvers og eins ráðherra myndi ekki breyta því að hver ráðherra hefði einungis eitt atkvæði. Sömuleiðis eru töluvert fleiri kjósendur á bak við mig en suma aðra þingmenn en mitt atkvæði gildir samt bara einu sinni.
Eftir stendur að í ráðherraráði Evrópuráðsins höfum við mikilvæga rödd og í Evrópuráðsþinginu, þar sem hlutur okkar er meira í samræmi við stærð okkar — við erum með þrjá þingmenn á meðan landsdeild t.d. Þýskalands er með 18 — er okkur oft treyst góðra verka, sérstaklega út af landfræðilegri stöðu og vegna þess að við erum talin svolítið óháð og ekki í hvirfilvindi einhverra deilna jafnvel á milli stórra svæða í Evrópu. Við erum talin (Forseti hringir.) hlutlaus fulltrúi sem getur tekið að sér mikil og ærin verkefni sem teljast pólitískt umdeild vegna (Forseti hringir.) stöðu okkar og jafnvel vegna smæðar okkar.