fjárlög 2022.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmann svarið. Bara til gamans þá held ég að það liggi þannig að mestur fjöldi atkvæða á hvern þingmann sé á bak við þingmenn Miðflokksins þetta þingið. En það er nú útúrdúr.
Þá að því sem ég ætlaði að spyrja um í fyrra andsvari. Hv. þingmaður kom inn á áhyggjur sínar af búsetu í atvinnuhúsnæði í ræðu sinni. Ég deili þeim áhyggjum með henni að það sé raunverulegt vandamál. Ef ég man rétt eru rétt um 7.000 manns sem í dag er áætlað að búi í atvinnuhúsnæði sem ekki er samþykkt sem íbúðarhúsnæði. Hvaða lausnir telja Píratar vera skynsamlegastar í þeim efnum? Þetta er auðvitað mál sem verður meira aðkallandi, myndi ég halda, eftir því sem tíminn líður og sérstaklega í ljósi alvarlegra atburða sem átt hafa sér stað. En engu að síður, ef það er rétt að 7.000 manns búi við þessi skilyrði, sér hv. þingmaður fyrir sér að þetta þurfi að leysast með því að koma þessu fólki fyrir í búsetu í almennu íbúðarhúsnæði eða breyta regluverki gagnvart atvinnuhúsnæðinu sem búsetan er í í dag? Þetta er stórumyndarspurning í þessum efnum.