fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Þetta er góð spurning. Mér finnst einhvern veginn eins og stjórnvöld gefist alltaf upp þegar kemur að tímapunktinum: Já, en hvert á þetta fólk að fara? Það er eins og þetta sé þannig að af því við getum ekki hent því á götuna þá ætlum við ekki að gera neitt í því að þau búi í ólögmætu atvinnuhúsnæði. Hvað finnst mér að ætti að gera? Mér finnst nokkuð augljóst að það þarf að styrkja félagslega húsnæðiskerfið á Íslandi og það þurfa að vera sértæk úrræði fyrir fólk sem er fast í óíbúðarhæfu húsnæði. Ég myndi alls ekki vilja breyta regluverkinu þannig að það væri bara hægt að geyma fólk á lagernum í atvinnuhúsnæði, alls ekki. En við þurfum líka að horfa á regluverkið sem er í kringum brunavarnir og hversu erfitt það er í raun að neyða eigendur húsnæðis til að passa upp á að allar brunavarnir séu í lagi og hversu auðvelt það er að hýsa fullt af útlendingum í atvinnuhúsnæði án þess að það hafi teljandi afleiðingar fyrir þann sem það gerir.
Ég held að þetta sé vandi sem þarf að ráðast að úr mörgum áttum. Eitt af því er auðvitað að það er óbærilega dýrt að búa á Íslandi. Fólk er flutt hingað inn liggur við í förmum til að sinna uppbyggingu á Íslandi þegar vel árar og það er geymt á stöðum eins og lager. Það er alger skömm í okkar ríka samfélagi að slíkt fái að viðgangast, að við höfum vitað þetta svo árum skiptir án þess að eitthvað hafi verið gert í því. Þetta er alveg ótrúleg skömm. Ég held að ég hafi sjaldan upplifað annað eins sinnuleysi ráðamanna gagnvart harmleik á Íslandi en akkúrat í þessum bruna. Ég minnist þess sterklega að hæstv. forsætisráðherra var meira í mun að fagna sigri á einhverjum fótboltaleik (Forseti hringir.) en að sýna fólkinu sem missti þarna fjölskyldumeðlimi og vini einhverja samkennd. Það var mjög skammarlegt, virðulegi forseti.