fjárlög 2022.
Hæstv. forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni sérstaklega fyrir þetta innlegg við fjárlagaumræðuna og fagna því innilega að hér sé séum við að taka umræðu um flóttamannaaðstoð, þróunaraðstoð og annað sem á að vera grundvallaratriði í utanríkisstefnu Íslands. Ég hef reynslu af þessum störfum eins og hv. þingmaður og hef oft undrað mig á því, bæði í mínu fyrra lífi sem alþingismaður og reyndar líka á síðustu árum, hvað við sýnum þessum málaflokki litla athygli, lítinn skilning og í rauninni litla ábyrgð.
Mig langar að setja það í pólitískt samhengi af því að við höfum tekið þátt í stríðsrekstri. Við studdum innrásina í Írak. Við erum enn að horfast í augu við afleiðingarnar af því. Það var árið 2003. Árið 2001 var ráðist inn í Afganistan. Við höfum sem aðildarríki NATO tekið fullan þátt í því starfi og þeirri uppbyggingu sem þar hefur átt sér stað en það hefur ekki heyrst bofs frá stjórnvöldum eftir skammarlegt brotthvarf NATO-þjóðanna frá Afganistan þar sem Afganir voru skildir eftir á vonarvöl í höndum talibana. Það er eins og það komi Íslandi ekki við. Mig langar svo að fá umræðu um það hér á hinu háa Alþingi hver sýnin er. Ég spyr eins og hv. þingmaður, ég spyr hæstv. utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra: Hver er sýnin? Hver er ábyrgð Íslands? Hvenær ætlum við að horfast í augu við ábyrgð Íslands í þessum málum, herra forseti?