152. löggjafarþing — 5. fundur,  4. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[11:09]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 8. þingmanni Suðvesturkjördæmis fyrir góð andsvör. Það er svo sannarlega kominn tími til að við ræðum þessi mál. Við rífumst hér, eða kannski ekki við, þau ykkar sem hafa verið hér á undan hafa rifist um það hvað skuli gera við hælisleitendur. Þar erum við að rífast um afleiðingarnar, ekki orsökina. Við þekkjum það öll að það þýðir ekki endalaust að reyna að setja plástra á hlutina. Við þurfum að tækla hlutina þar sem þeir eru.

Það er stríð í Afganistan, hv. þingmaður nefndi það. Því miður virðist vera að áratugastefna í rétta átt með hluti þar hafi farið á nokkrum vikum. Mér er sér í lagi hugsað um konur í Afganistan og þau tækifæri sem þær hafa glatað. Þar getum við gert stóran hlut og ríkisstjórnin hefur sagst vilja taka á móti örfáum einstaklingum, sér í lagi einstaklingum sem hafa verið tengdir við Ísland á einhvern máta. Á sama tíma sér maður önnur lönd og jafnvel einstaklinga hjálpa til við að fá heilu fótboltaliðin.

Mig langar að setja fram smá hugmynd til hæstv. utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. Hugsum líka um það hvernig við getum hjálpað konum í Afganistan að mennta sig, jafnvel þar sem þær eru fastar innan Afganistan sjálfs. Það er nefnilega líka hægt að nýta stafræna tækni við að ná til þess fólks sem er að fela sig í stað þess að mæta í háskóla sem nú eru allir lokaðir konum.