fjárlög 2022.
Virðulegi forseti. Ég get ekki annað en verið algjörlega sammála hv. þingmanni, það er til mikillar skammar. Ef við viljum gera eitthvað t.d. fyrir þá sem flýja stríð í Afganistan er til auðveld leið: Að hætta að senda burt hælisleitendur frá Afganistan sem eru þegar á Íslandi. Þá kemur kannski spurning eða kvörtun frá einhverjum: Já, en eru þetta ekki bara einhverjir karlmenn sem eru komnir hingað? Jú, ég skal nefnilega segja þér það: Það er ekki auðvelt að vera á flótta. Fólk er oft í hættu á að einhverjir hneppi það í mansal eða ýmislegt annað. Þá eru það karlmennirnir sem fara á undan til að geta síðan tekið restina af fjölskyldunni með. Þetta er hlutur sem við gleymum mjög oft. Ég segi bara: (Forseti hringir.) Ef fólk leggur á sig að koma hingað, á hjara veraldar, á einhvern stein hérna úti í miðju Atlantshafi, þá er það fólk sem við viljum fá hingað. Við fólk sem leggur á sig svona mikla vinnu eigum við bara að segja: Velkomin.
(Forseti (BÁ): Forseti áréttar að tíminn í andsvörum er takmarkaður og biður hv. þingmenn að virða það.)