fjárlög 2022.
utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna, gott og gagnlegt yfirlit, og spurninguna sem hann beindi til mín. Fyrst vil ég bara ítreka og leggja áherslu á mikilvægi þróunarsamvinnu almennt. Ég tek undir með hv. þingmanni þegar hann nefnir að það sé kannski allra mikilvægast að horfa til þess að við séum að aðstoða fólk við að byggja upp svæðið heima, að við séum að gera það sem við getum og þar sem við gerum gagn í að gera fólki kleift að standa á eigin fótum. Að sjálfsögðu á eitt ríkasta land í heimi að vera fullur þátttakandi í þróunarsamvinnu og það erum við. Ég vil að við horfum áfram til þess hvar við erum sterk, hvar okkar styrkleikar liggja, vegna þess að það er þannig sem við gerum langmest gagn og þess vegna tek ég undir með bæði hv. þingmanni og auðvitað utanríkisstefnu okkar fram til þessa þar sem við höfum lagt áherslu á til að mynda jarðhitaverkefni, jarðhitaskóla, áherslur í jafnréttismálum og menntun stúlkna. Það væri áhugavert að kanna hvort eitthvað nýtt eða annað væri hægt að gera þegar kemur að svona frumkvöðlanálgun þar á svæðinu, þar sem það þarf kannski ekki endilega svo mikið til að komast af stað sem síðan getur orðið stærra. Sömuleiðis þegar kemur að annarri grænni orku, vegna þess að það er einfaldlega risastórt mál, hvort sem það snýr að loftgæðum eða því hvernig ákveðin svæði framleiða matvöru, hvort sem það eru kaffibaunir eða hvað annað, þar sem við getum einfaldlega aukið lífsgæði fólksins á svæðinu verulega. Og það er jákvætt að finna fyrir því að það er tekið eftir þætti Íslands í þessari vinnu almennt. En alltaf, að sjálfsögðu, getum við gert betur.