152. löggjafarþing — 5. fundur,  4. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[11:24]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið og það var ánægjulegt að heyra að ráðherra vill halda áfram að gera góða hluti á þessu sviði. En mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um að nýta okkar eigin hjálparsamtök og byggja upp hluti í gegnum þau eins og forveri ráðherra í starfi gerði svo vel, hvort það sé stefna nýs hæstv. ráðherra að halda áfram að auka það hlutfall sem fer í gegnum það. Eins langaði mig að heyra hvað ráðherra hefur að segja um marghliða stuðning okkar í gegnum UN Women og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hvort það sé ætlunin að auka hann á milli ára. Við þurfum að passa að við séum ekki að reyna að gera allt heldur finna ákveðin verkefni sem við erum góð í og þar sem við getum látið gott af okkur leiða og þar sem við getum haft áhrif umfram þá stærð sem okkar land er. Það hefur einmitt sýnt sig í t.d. jafnréttismálunum, líka í mannréttindamálum, að rödd Íslands heyrist og áhrif Íslands finnast á þessum takmörkuðu svæðum. Það er um að gera að við nýtum okkur það.