152. löggjafarþing — 5. fundur,  4. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[11:45]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Það er bara elegant og einföld lausn að segja bara í málefnasamningnum hvað þú ætlar að gera á næsta ári eða tveimur í stjórnkerfisbreytingum. Sveitarfélög úti um allt land gera það þannig. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur gerði það þannig. Þar var ráðist í miklar og nauðsynlegar breytingar á stjórnkerfinu en það var ekki gert án greininga, án samráðs við starfsfólk. Það var gert akkúrat eins og hv. þingmaður nefnir, með því að segja í stjórnarsáttmála: Við viljum efla ráðuneytin þannig að þau sinni sínu betur. Svo var eiginlega allt kjörtímabilið tekið í það, í tveimur meginskrefum. Stærsta skrefið var stigið veturinn 2010–2011, svo var lokahnykkurinn 2012–2013 þegar umhverfis- og auðlindaráðuneyti og atvinnuvegaráðuneyti urðu til. Þetta er ekkert flóknara. Þetta sýnir starfsfólkinu virðingu og þetta sýnir verkefninu virðingu að vinna þetta, jú, út frá pólitískri sýn en á faglegan hátt, ekki með pólitísku fúski alla leið. En ég ætlaði nú ekki að dvelja mikið við þetta. Ég treysti því að hv. þingmaður, þótt aðeins sé hann áheyrnarfulltrúi í fjárlaganefnd, muni fylgja þessu rækilega eftir af því að þetta skiptir máli í samhengi fjárlaganna.

Mig langar aðeins að ræða ástandið á svæðinu, á Reykjanesskaga. Sumarfundur ríkisstjórnarinnar var haldinn í Salthúsinu í Grindavík í ágúst, minnir mig, og þar komu ráðherrarnir mjög kátir og sögðust hafa hlustað mikið á heimamenn. En ég skil hv. þingmann þannig að ráðherrarnir hefðu kannski ekki meðtekið mikið af því sem var sagt á þessum fundi. (Forseti hringir.) Það sé ekki mikið að sjá í þessu frumvarpi sem tekur á þeirri sérstöku stöðu sem Suðurnesin eru í atvinnulega og í flestu tilliti.