152. löggjafarþing — 5. fundur,  4. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[11:47]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að halda því fram að þessar breytingar sem eiga sér stað séu ekki réttmætar. En að mínu viti eru þær rangt tímasettar. Ég held að það hefði verið betra að fara hægar í sakirnar og reyna að vinna þetta betur til að ná utan um það og að allir nái utan um þær breytingar sem eiga sér stað, ekki bara þessir þrír umræddu aðilar sem hér voru nefndir heldur þingmenn allir og starfsmenn allir, þannig að við værum að vanda okkur.

Já, það var haldinn fundur í Grindavík og ég var á þeim fundi. Það hafa svo sem verið haldnir margir fundir og ég ætla bara að þakka ríkisstjórninni fyrir að þegar WOW féll 2019 voru haldnir margir fundir og skoðaðir möguleikar til þess að hjálpa sveitarfélögunum á Suðurnesjum við þær aðstæður sem þá voru uppi. En þær voru í raun og veru bara djók miðað við það sem síðan gerðist í Covid. Atvinnuleysið í kringum WOW var í kringum 10% en fer síðan upp í 25% í Covid-ástandinu þegar flugvellinum er bara lokað. Ætli það séu ekki u.þ.b. 40% af því sem við erum að gera á Suðurnesjum sem verður til vegna flugstöðvarinnar og tengdrar starfsemi, þannig að þetta hefur veruleg áhrif á sveitarfélögin. Þrátt fyrir að þau sértæku verkefni sem ráðist var í hafi virkað þá virkuðu þau ekki fyrir þá sem voru enn á atvinnuleysisbótum, þau 25% sem voru á atvinnuleysisbótum. Það hjálpaði þeim ekki, enda var atvinnuleysisbótatímabilið það stysta á öldinni.