152. löggjafarþing — 5. fundur,  4. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[11:49]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og verð að taka undir að ég er býsna hvumsa yfir því ábyrgðarleysi ríkisstjórnarinnar að hafa ekki hugmynd um þann kostnað sem fylgir uppskiptingu allra þessara ráðuneyta. Í gærkvöldi gerði ég tilraun til að fá einhverjar upplýsingar hjá forsætisráðherra, sem er jú framkvæmdastjóri eða öllu heldur forstjóri þessa fyrirtækis sem er ríkisstjórn Íslands, sem ætti að hafa yfirsýn yfir þau verkefni sem fram undan eru. Ég kom algjörlega að tómum kofanum þegar kom að því að fá svör við annars vegar bara yfirsýninni, matinu á verkefninu; hver væri ávinningurinn og síðast en ekki síst hver væri kostnaðurinn.

Nú er það svo að þetta er ekki í fyrsta skipti sem þessir þrír flokkar í ríkisstjórn fara í svona aðgerðir. Það gerðist á síðasta kjörtímabili að velferðarráðuneytið var klofið niður og kostnaðaráætlun við þá aðgerð að færa jafnréttismálin frá félagsmálaráðuneyti yfir í forsætisráðuneytið var 270 milljónir, bara við þetta, bara við að flytja þetta eina verkefni milli félagsmálaráðuneytis yfir í forsætisráðuneyti og að skipta upp í rauninni. Það var ekki verið að fjölga ráðherrum, bara skipta þeim upp, bara búa til vegg á milli, síló á milli, 270 milljónir bara fyrir það. Það var áætlunin. (Forseti hringir.) Við vitum hvernig er með áætlanir ríkisins, að þær eiga það til að bólgna út. (Forseti hringir.) Þannig að þetta er einhver smá tilfinning sem við getum haft (Forseti hringir.) á því sem gerðist 2018–2019.