152. löggjafarþing — 5. fundur,  4. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[11:56]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Manni fallast eiginlega bara hendur þegar maður heyrir þetta. Við erum búin að vera að hlusta á þá sem bent hafa á það sem við gætum verið að gera fyrir fólk í neyð, til gagns. Þegar hv. þingmaður nefnir alla þessa hluti þá er ég hættur að hugsa í tugum milljarða, ég er líka hættur að hugsa í hundruðum milljóna. Við hljótum að fara þurfa að hugsa einhverjar stærri tölur en það sem mun þá að öllu jöfnu bætast við þann 170 milljarða í halla sem búið er að teikna upp í því frumvarpi sem verður ekki.

Ég spyr: Hver er forgangsröðunin núna á þessum tímapunkti? Ætlum við bara að vera að leika okkur með hvort þessi eigi að sitja í þessum stól eða þessum eða þarna frammi eða hérna inni? Er þetta það sem við eigum að vera að leggja áherslu á á þessum tímapunkti? Það er búið að benda á að við stöndum okkur mjög illa í því að styðja við fólk í neyð samanborið við hin Norðurlöndin. Ef við værum t.d. að eyða 1 milljarði til að setja inn í sálfræðifrumvarpið sem var samþykkt hér á síðasta ári í stað þess að vera að gera þetta, væri þá ekki miklu gagnlegra að eyða fjármununum í það eða að styðja við fólk á flótta, setja þetta í þróunaraðstoð eða hækka barnabætur eða gera ýmislegt annað en að vera bara að leika okkur að því að svissa á einhverjum stólum?