152. löggjafarþing — 5. fundur,  4. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[11:59]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Ég hef fylgst af athygli með 1. umr. um fjárlagafrumvarp Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, hér á liðnum sólarhringum og mér hefur þótt hún upplýsandi, efnisleg og góð og gefa kjósendum, almenningi, góða mynd af því hvað er hér á ferðinni. Til þess er auðvitað starf okkar hér á hinu háa Alþingi, að upplýsa, að rýna til gagns og í gegn og veita það aðhald sem hver stjórnarmeirihluti þarf á að halda. Það hefur valdið mér svolitlum vonbrigðum, ég get þó ekki sagt að ég sé hissa, að stjórnarliðar, þingmenn, þeir sem styðja þessa ríkisstjórn, hafa ekki tekið mikinn þátt í þessari umræðu. Þeir taka vonandi við sér í nefndinni sjálfri, í hv. fjárlaganefnd, og kannski við 2. umr. Hver veit? Þannig virkar nú lýðræðið, með málefnalegum skoðanaskiptum og því að stjórnvöld, hv. þingmenn, geti fært rök fyrir því hvers vegna þeir séu fylgjandi einni aðferð en ekki annarri, einni nálgun en ekki hinni. En það sem kannski er skýrast hér er að umræðan og fjárlagafrumvarpið, texti þess, hefur varpað skýru ljósi á þá staðreynd að nýtt ráðuneyti, annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur, hæstv. forsætisráðherra, er, eins og ég óttaðist, að einhverju leyti myndað um lægsta pólitíska samnefnara í þeim málaflokkum þar sem lengst er á milli stjórnarflokkanna. En þetta er í reynd tvískipt nálgun af því að eitt er að auðvitað eru þrír stjórnmálaflokkar ekki sammála um öll atriði, og hafa ólíkar áherslur. Þá er farin þessi leið lægsta samnefnara sem við reyndar sáum allt síðasta kjörtímabil. En það er líka þannig, eins og hér hefur verið bent á, að það eru vissulega mjög stórir málaflokkar þar sem stefna Vinstri grænna, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins fellur í einum og sama farvegi og rennur þar. Sú stefna hefur verið kennd við íhald. Ég veit ekki hvort það er rétta orðið, en það lýsir því að einhverju leyti. En fyrst og fremst snýst hún um varðstöðu um óbreytt valdakerfi, óbreytt auðlindakerfi og varðstöðu um þá sem fara með völd auðsins í þessu samfélagi. Og öll vitum við hvar auðurinn verður til á Íslandi. Hann verður til við nýtingu náttúrulegra auðlinda, hann verður auðvitað til í verslun og þjónustu að einhverju leyti, en lykillinn að Íslandi er aðgangur að náttúrulegum auðlindum, hefur alltaf verið og verður um einhverja framtíð af því að mér sýnist á þessu fjárlagafrumvarpi að það eigi ekki að reyna með neinum sannfærandi hætti að byggja undir nýjar útflutningsatvinnugreinar eða nýta mannauðinn í landinu með þeim hætti að horfi til framfara og uppbyggingar á sviði atvinnulífsins.

Gott og vel. Hæstv. forsætisráðherra hefur rætt um að ríkisstjórnin spanni litróf stjórnmálanna. Hún kann að gera það í ákveðnum málaflokkum en mér finnst hún eiginlega frekar vera litförótt. Hún skiptir litum og það fer eftir því hvað er til umfjöllunar hvar þessa ríkisstjórn ber niður. Það er auðvitað það sem gerist, hæstv. forseti, þegar stjórnmálaflokkar taka að sér það verkefni, sjálfviljugir og með opin augun, í annað skiptið á fjórum árum, að sprengja upp hið pólitíska landslag á Íslandi. Við höfum rætt það í þessari umræðu og það hefur verið rætt oft og úti í samfélaginu og það mátti hafa ákveðinn skilning á því hvers vegna Vinstri græn fóru í stjórnarsamstarfið fyrir fjórum árum. En ég get ekki lýst vonbrigðum mínum sem Samfylkingarkonu og jafnaðarmanns yfir því að flokkur sem kennir sig við vinstri og grænt skuli tvisvar á fjórum árum taka yfirvegaða, kalda, pólitíska ákvörðun um að vinna áfram með þeim tveimur flokkum sem við sem eldri erum þekkjum sem helmingaskiptaflokkana því að þeir hafa á síðustu öld, alla tíð og allan lýðveldistímann, verið með alla þræði valdsins í þessu landi í sínum höndum. Þeim þráðum hafa þeir haldið með útdeilingu gæðanna, hvort sem það var nú til verktaka sem þjónustuðu herinn á meðan hann var á Miðnesheiði, útdeilingu til þeirra sem fengu innflutningsleyfi eða ekki hér í gamla daga, hverjir keyptu togarana, útdeilingu nýtingarréttar auðlindarinnar og hvernig það hefur farið o.s.frv. Og þá er ég ekki byrjuð að tala um hvernig þessir tveir flokkar hafa áratugum saman raðað öllu sínu fólki skilvirkt og vel inn í þær valdastöður þar sem þessir flokkar telja sig þurfa að vera. Þar er kannski dómskerfið nærtækasta dæmið. Borgarnes kemur upp í hugann. — En það þarf að sækja fram og byggja upp. Mun þessi ríkisstjórn gera það? Því miður er fátt sem bendir til þess í fjárlagafrumvarpinu. Auðvitað á fjárlagafrumvarpið að halda gangandi þeirri starfsemi sem þarf að vera gangandi í landinu. Mig langar að vitna í hv. þm. Samfylkingarinnar, Kristrúnu Frostadóttur, sem er fulltrúi okkar í fjárlaganefnd, en hún hefur dregið það fram að í fjárlagafrumvarpinu stendur beinlínis skrifað svart á hvítu að ekki eigi að efna til annarra teljandi nýrra útgjalda nema þeirra sem tengjast aðstæðum af völdum kórónuveirufaraldursins. Það þýðir í rauninni það, sem við vitum svo sem eftir að hafa lesið frumvarpið, að jú, að sjálfsögðu ætlar ríkisstjórnin að bregðast við því ástandi sem skapast hefur vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Að sjálfsögðu. En ætlar hún að gera eitthvað meira? Ætlar hún að horfa til langrar framtíðar? Ætlar hún að byggja upp? Nei, það ætlar þessi ríkisstjórn ekki að gera. Þetta frumvarp ber ekki með sér að neitt slíkt sé í pípunum.

Ráðstöfun sem þó horfir til bóta, eins og það að hækka frítekjumark eldri borgara, er sjálfsögð aðgerð, en við vitum öll, af því að hver einasti stjórnmálaflokkur á Íslandi hefur skoðað þetta og gefið um það loforð í aðdraganda kosninga, að hækkun frítekjumarks atvinnutekna eldri borgara snertir u.þ.b. 1.500 af 40.000 manns sem þiggja ellilífeyri. Það að hækka skerðingarmörkin gagnvart lífeyrissjóðstekjum er auðvitað allt önnur og miklu stærri aðgerð og aðgerð sem leiðir til miklu meiri jöfnuðar og er miklu meiri þörf á en sú sem hér er gerð, þótt hún sé ágæt svo langt sem hún nær.

Hér hefur margoft komið fram og er minnt á það reglulega í ræðum mjög margra hv. þingmanna að það er eins og það komi þessari ríkisstjórn ekki við hver kjör þeirra eru sem eru með skerta starfsgetu og/eða búa við fötlun, kjör fatlaðs fólks á Íslandi. Jú, það er boðið þetta 1% umfram verðlagshækkun, ef ég man það rétt, sem verðbólgan mun náttúrlega éta upp ef hún heldur áfram með þessum hætti. Þá er ekki talað um kjaragliðnunina á milli lægstu launa og bótanna, 80.000 kr. Það er stórkostlega há upphæð fyrir hvern einasta mann, hvern einasta karl og konu í landinu sem þarf að vera á örorku. Síðan er heldur ekki snert á frítekjumarki atvinnutekna sem hefur, eins og allir vita, verið á sama stað í 12 ár frá því að Jóhanna Sigurðardóttir var félagsmálaráðherra hér á Íslandi.

Mig langar aðeins að nota tækifærið, hæstv. forseti, til að nefna til sögunnar þau efnisatriði sem forystukonur verkalýðshreyfingarinnar hafa nefnt á undanförnum dögum og ritað um greinar í fjölmiðla.

Drífa Snædal, forseti ASÍ, bendir á það augljósa, þ.e. stöðu húsnæðiskerfisins, staða húsnæðismarkaðarins. Við í Samfylkingunni höfum talað fyrir því og viljum að sjálfsögðu efla hið almenna húsnæðiskerfi. Það er m.a. gert með því að tvöfalda stofnframlögin og við teljum í rauninni enga ofrausn að gera það vegna þess að það er leið til að byggja öruggt og gott og ódýrt húsnæði fyrir fólk með lágar tekjur eða meðaltekjur, og hún skilar sér. Bjarg hefur sýnt okkur það að hún skilar sér beint í vasa launafólks. Þetta hefur verið og er krafa verkalýðshreyfingarinnar, sjálfsögð og eðlileg, enda vitum við öll að húsnæðisöryggi er grundvöllur velferðar og góðs lífs hverrar einustu manneskju hér á landi. Án húsnæðisöryggis er hættan á fátækt, heilsubresti og öðrum vondum afleiðingum þess mjög mikil og við framleiðum erfiðleika, ef ég má taka svo ósmekklega til orða, með því að tryggja fólki ekki húsnæðisöryggi. Með því að auka framlög til almennra húsnæðiskerfisins erum við auðvitað líka að grípa til alvöruaðgerða til að auka framboð húsnæðis á markaði. Það að auka framboðið minnkar verðpressuna eins og allir vita. Það kemur öllum til góða á endanum að gera það þannig. Það fjölgar íbúðum á markaði, þær eru á viðráðanlegu verði og það á auðvitað að hafa áhrif á allan markaðinn, kemur öllum til góða. Eins og við vitum með húsnæðismarkaðinn, þó að við köllum hann markað og hann lúti auðvitað að einhverju leyti lögmálum framboðs og eftirspurnar þá er það er samt þannig að ef við skildum hann bara eftir í höndum markaðsaflanna þá ættu efnaminnstu hóparnir engin tækifæri til að koma sér þaki yfir höfuðið, hvorki í leigu né eigu.

Ég tek því undir með forseta ASÍ, stórátaks er þörf og það eru engar nýjar fréttir. Þetta hefur verið fjallað um árum saman. Sú sem hér stendur sat í sínu fyrra starfi í átakshópi um húsnæðismál sem skilaði af sér fyrir líklega að verða þremur árum. Það lá algerlega fyrir hvað þurfti að gera og ríkisstjórnin var með langan lista af verkefnum sem þurfti að ráðast í. Auðvitað hefur verið ráðist í sum en það hefur t.d. ekki verið ráðist í eitt það mikilvægasta sem þar var lagt til og það var að efla vernd leigjenda á markaði, grundvallaratriði fyrir húsnæðisöryggi. — Hafi ég skilið hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra rétt hyggst ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hækka svokölluð skerðingarmörk barnabóta eða stuðnings við foreldra sem eru með börn á sínu framfæri, upp í 390.000 kr. Til að allir skilji það rétt þá þýðir það það að barnabætur byrja að skerðast við tekjur sem eru 390.000 kr., sem er nálægt lágmarkslaunum í landinu. Ég veit ekki hvort ég á að segja þetta, en jú, þetta veldur mér eiginlega djúpum vonbrigðum af því að ég held að hvar sem við erum í flokki þá hljótum við að vera sammála um að það að jafna kjör barna og ungmenna í landinu sé það mikilvægasta sem við getum gert sem stjórnmálamenn, það allra mikilvægasta. Stuðningur við foreldra barna, svokallaðar barnabætur, er besta leiðin til þess að jafna stöðu barna og ungmenna á Íslandi. Langbesta leiðin til þess. Hún lyftir börnum upp úr fátækt, gefur þeim félagsleg tækifæri sem þau hefðu annars ekki og skapar jafnvægi og jöfnuð í samfélaginu, sem ég vona að við viljum öll hafa. Þess vegna hafa jafnaðarmenn í nágrannalöndum okkar alltaf nýtt barnabótakerfi sem sitt aðaltilfærslukerfi innan hins stóra skattkerfis og það eigum við að gera. Ég heiti á þingmenn stjórnarandstöðu og stjórnarmeirihluta að taka höndum saman með okkur í Samfylkingunni sem viljum hækka þessi skerðingarmörk mun meira og gera það þannig að við búum til stuðning við fjölskyldur í landinu og foreldra barna sem skiptir máli fyrir börnin, sem losar börn sem eiga efnalitla foreldra úr fátæktargildrum og gefur þeim tækifæri sem þau hefðu annars ekki. Við verðum að breyta þessu og við verðum að skynja ábyrgð okkar í því að búa að yngstu kynslóðum þessa lands þannig að þau eigi raunverulega tækifæri til að mennta sig, til að þroskast, til að stunda tómstundir og verða að fullþroska einstaklingum í lýðræðissamfélagi sem telja sig geta lagt til, vilja vera með, eru virkir þátttakendur. Þetta er mikilvægasta hlutverk okkar sem stjórnmálamanna. Ég fer ekki ofan af því.

Mig langar aðeins að tala um orðræðuna um opinbera starfsmenn. Formaður BSRB, Sonja Ýr Þorbergsdóttir, bendir á það í góðri grein sem birtist í gær hvernig orðræða bæði Samtaka atvinnulífsins og stjórnmálamanna um opinbera starfsmenn er ólíðandi. Verið er að ræða um starfsfólk í menntakerfinu, heilbrigðiskerfinu, í félagsþjónustunni sem bagga á samfélaginu. Þetta eru sömu starfsstéttir, sama fólk og hefur haldið Íslandi gangandi í tvö ár á tímum heimsfaraldurs. Hjúkrunarfræðingarnir, leikskólakennararnir, slökkviliðsfólkið, strætóbílstjórarnir og fleiri má nefna, fólkið sem sér til þess að við getum stundað vinnu okkar, að við fáum heilbrigðisþjónustu, að börnin okkar fái menntun, fólkið sem ræstir allt húsnæði hins opinbera og allt fólkið sem hingað hefur komið til að hjálpa okkur á vinnumarkaði frá öðrum löndum til að sinna störfunum sem við eigum hreinlega ekki fólk í, mjög margt af því fólki eru opinberir starfsmenn. Það rennur mér til rifja, sérstaklega í ljósi þess augljósa árangurs og þeirra fórna sem færðar hafa verið í starfi þessara starfsstétta á síðustu tveimur árum, að menn leyfi sér að ræða um heilu stéttirnar sem einhvers konar afætur á samfélaginu. Þetta er ekki boðleg umræða og ég tek undir með formanni BSRB sem segir það ábyrgðarhluta að talsmenn stórfyrirtækja og talsmenn atvinnurekenda skuli leyfa sér að tala með þessum hætti.

Mig langar að lokum að ræða um það sem hér hefur verið mikið rætt bæði í morgun og í gær í þessum ræðustóli, en það eru hinar miklu skipulagsbreytingar í Stjórnarráðinu. Ég get alveg viðurkennt að ég held að það sé oft gott að stokka upp. Ég held að það sé ágætisleið til að aðlaga stjórnkerfið að kröfum, breyttum aðstæðum og líka að áherslum ríkisstjórna, og geri ekki athugasemdir við það. En ég geri athugasemdir við skort á undirbúningi og algera óvissu um það hvað þessar breytingar munu kosta. Við vitum það alveg sérstaklega að þegar ráðamenn ráðast í svona breytingar án þess að gera um það fjárhagslega verkáætlun — sé hún til þá hef ég ekki séð hana og það væri gott að fá hana fram, kannski kemur hún fram í hv. fjárlaganefnd, hvað veit ég — þá eru meiri líkur en minni til þess að kostnaður fari úr böndunum og að ófyrirséðir kostnaðarliðir dúkki upp einhvers staðar í ferlinu. Þetta segir sig sjálft og það eru svo sem engar nýjar upplýsingar.

Það er líka á þessu hlið sem Friðrik Jónsson, formaður BHM, Bandalags háskólamanna, hefur bent á og ritað hæstv. forsætisráðherra um það bréf, en það er auðvitað að allt þetta starfsfólk í Stjórnarráðinu hefur réttindi sem opinberir starfsmenn og það er ekki hægt að skáka fólki til bara einhvern veginn. Það þarf að gæta að réttindum þess á vinnumarkaði, það þarf að gæta kjarasamningum. Ég held nú reyndar að flestir í Stjórnarráðinu geri sér grein fyrir því að það þarf að gera. En það er ekki síður mikilvægt í þessu samhengi að upplýsa fólk um hvert það er að fara og hvers vegna, hver nýju verkefnin verða, og eins og formaður BHM orðaði það svo ágætlega í viðtali í vikunni, hvar það eigi að mæta í vinnuna og hvert umhverfið verður. Miklar breytingar á vinnustöðum geta valdið mikilli óvissu og vanlíðan, það þekkjum við, og það sem ber kannski helst að varast við slíkar breytingar er einmitt að búa til óþarfa óvissu. Við vitum að þegar fólk þarf að starfa í umhverfi þar sem það veit ekki nákvæmlega hver verkefnin eru eða þau breytast daglega eða fólk er á einhverri ferð og fer yfir í eitthvert annað ráðuneyti eða hvernig sem það er, þá dregur það hreinlega úr vinnugleði, framleiðni og hægir á. Án þess að ég vilji vera hér með óþarfa svartsýni þá held ég að miðað við hvernig undirbúningurinn er eða miðað við skort á undirbúningi þá sé ekki ólíklegt að það verði ekki jafn mikil framleiðni í Stjórnarráðinu næstu mánuði eins og annars yrði. Þetta þarf allt að taka með í reikninginn af því að þetta er bara hluti af því stjórnkerfi sem við höldum úti og við viljum að verkefnin gangi hratt og vel og snurðulaust.

Svo er eitt allra síðast, hæstv. forseti, sem gott væri að íhuga líka hér við 1. umr. um fjárlagafrumvarp fjármála- og efnahagsráðherra: Eitt af því sem þessi nýja ríkisstjórn ætlar að gera er að búa til eitthvað sem heitir umhverfis-, orku- og auðlindaráðuneyti. Tilgangurinn er nokkuð augljós, held ég. En það sem hér er ekki gert er kannski það sem þyrfti að skoða betur. Hér er vannýtt tækifærið til þess að setja á stofn alvöruauðlindaráðuneyti á Íslandi, sem allar náttúruauðlindir myndu heyra undir og ramminn um umgengni við þær væri þar. Eins og við vitum þá hefur þessum málaflokki verið dreift á nokkur ráðuneyti mjög lengi og mér hefði þótt það vera mikið framfaraskref ef í þessari uppstokkun ríkisstjórnarinnar hefði verið tekið það skref að stofna loksins auðlindaráðuneyti í Stjórnarráðinu sem stæði undir nafni, hefði það mikilvægi og þá stöðu að til þess væri litið og eftir því tekið. Við vitum öll, og það blasir við að með því að setja orkumálin inn í umhverfisráðuneytið, að það er náttúrlega verið að búa til vettvang orkuskipta þar sem línan er að það þurfi að virkja meira til þess að orkuskiptin fari fram. Tilgangurinn helgar meðalið og það verður einhvern veginn að sjálfstæðu afli, nálgist fólk það mikilvæga verkefni, orkuskiptin, sem það er, með þeim hætti að það sé orðið að eins konar framkvæmdaáætlun um virkjanir. Það verður fróðlegt að fylgjast með því hvernig nýjum hæstv. umhverfis-, orku- og auðlindamálaráðherra mun farast úr hendi að glíma við þessa mikilvægu og stóru málaflokka.

Ég ætla að taka undir sjónarmið sem komið hafa fram, m.a. frá talskonu Landverndar, að svo virðist sem náttúruverndarsjónarmið og önnur sjónarmið, sem þurfa alltaf að vera í forgrunni í umhverfisráðuneytinu, hafi verið gengisfelld í þessum áformum. Það er svolítið merkilegt, hæstv. forseti, að í allri umræðunni um loftslagsmálin og loftslagsvána og hamfarahlýnunina, sem er sannarlega stærsta viðfangsefni okkar á þessari öld, þá vill stundum gleymast að það er líka verkefni okkar að standa vörð um fjölbreytt lífríki, um samninginn sem það varðar, sem er líka samningur Sameinuðu þjóðanna. Ég ber ugg í brjósti ef ríkisstjórnin og stuðningsmenn hennar halda að það sé til ein patentlausn á loftslagsmálunum, það eina sem þurfi að gera á Íslandi á næstu árum sé að virkja til orkuskipta, því að þá erum við sannarlega komin á stað sem gæti skapað meiri vanda og fleiri deilur en ef við nálguðumst loftslagsmálin úr öllum áttum, sem er auðvitað það sem við þurfum að gera. Þau þurfa að skera í gegnum alla málaflokka í Stjórnarráðinu. Allt sem við gerum, allt sem við ákveðum, allar framkvæmdir sem yfirvöld fara í, allt sem hið opinbera fer í, verður að miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Það er stóra verkefnið og þannig ber að nálgast það.