152. löggjafarþing — 5. fundur,  4. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[12:27]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þingmaður var um skeið umhverfisráðherra, það var stutta nafnið á þeim tíma, árin 2007–2009. Við þekkjum það sem höfum látið okkur þennan málaflokk varða í þetta langan tíma hvað umræðan hefur þróast ótrúlega mikið, hvað það sem þótti róttækt og eiginlega bara brjálæðislega róttækt 2007–2009 er núna engan veginn næstum nærri nóg. Þegar ég var núna í síðasta mánuði á fundi loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna í Glasgow fór ég að velta fyrir mér hvort fólk eins og við sem hefur verið þetta lengi í bransanum væri farið að verða sjálfstætt vandamál í baráttunni gegn loftslagsbreytingum, að því gefnu að viðkomandi hefði ekki breytt um takt á þessum tíma. Ég veit að ég og hv. þingmaður höfum greikkað sporið á síðustu árum, sem sést t.d. á því að við stöndum saman að frumvarpi mínu um aukinn metnað, gagnsæi og aðhald í loftslagsmálum, sem er það lengsta sem gengið hefur verið hér í þessum sal. En ég velti fyrir mér hvort fólkið við ríkisstjórnarborðið sé í stjórnarsáttmála enn þá að miða árangurinn við það sem hefði þótt vera stjarnfræðilega góður árangur fyrir áratug síðan, hvort það sé vandamálið. Í Glasgow upplifði ég, þar sem ég sat inni í sal með ráðamönnum, allt annað tempó en úti á götu í 100.000 manna mótmælum ungs fólks sem skilur ekki aðgerðaleysið, sem skilur ekki þann hægagang sem reyndara fólkið lítur ekkert á sem hægagang heldur sem stór stökk fram á við miðað við það sem þau voru vön. Gæti þetta verið ein af ástæðum þess að ríkisstjórnir Katrínar Jakobsdóttur hafa sætt sig við jafn lítið og raun ber vitni í loftslagsmálum?