152. löggjafarþing — 5. fundur,  4. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[12:31]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka andsvarið. Hv. þm. Andrés Ingi Jónsson spyr hvort ég og hann séum farin að þvælast fyrir. Ég vona ekki, ég held að margt af því sem við erum að gera hér og leggja fram bendi til allt annars. Ég hef átt þess kost að sitja COP-ráðstefnurnar fjórum sinnum. Þar eru auðvitað gríðarlega flóknar samningaviðræður í gangi á milli ríkisstjórna og sérfræðinga en það sem er kannski merkilegast við þær eru félagasamtökin sem eru mætt á svæðið, fólkið sem er mætt á svæðið, það er fólkið sem þrýstir á um alvöruaðgerðir. Sem betur fer erum við núna undir miklum þrýstingi frá unga fólkinu og yngstu kynslóðunum, sem skilja ekki hvers vegna okkur þyki það í lagi að ræna þau í framtíðinni, sem er auðvitað ekki í lagi. Ég held samt að það sé ýmislegt til í því sem hv. þingmaður segir um gömul viðmið og það er kannski það sem ég var að reyna að lýsa þegar ég nefndi hér lægsta pólitíska samnefnarann. Viðmið Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um alvöruaðgerðir í loftslagsmálum eiga að vera og eru allt önnur en viðmið Vinstri grænna eiga að vera, miðað við það hvernig sá flokkur talar og ef maður les stefnuna. En það er auðvitað það sem gerist í þessari knúsuðu ríkisstjórn. Það virðist sem fólk fari að sætta sig við að ná minni árangri en það veit að það getur gert í öðru samhengi.