152. löggjafarþing — 5. fundur,  4. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[12:32]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Það er náttúrlega þannig þegar við blöndum saman öllum litum regnbogans þá fáum við brúnan. Það er ekki mest spennandi stjórnarsamstarfið sem hugsast getur. Þegar hv. þingmaður var umhverfisráðherra þá man ég að hún talaði stundum um ráðuneytið eins og eins konar andófsmann í ríkisstjórn, sem hefur væntanlega verið sérstaklega satt þar sem hún sat við borðið með Sjálfstæðisflokknum. Þetta er sú upplifun sem við fengum af Guðmundi Inga Guðbrandssyni á síðasta kjörtímabili þar sem hann var andófsmaður með frekar lítið bakland til að ná fram alvöruaðgerðum gagnvart mótherjunum. En hvað verður um þetta jafnvægi þegar Sjálfstæðisflokkurinn er kominn í það að vera andófsmaðurinn í þágu loftslagsmála og umhverfismála við stjórnarborðið? Þá raskast þetta allt og það veit ekki á gott.