152. löggjafarþing — 5. fundur,  4. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[12:33]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Það er auðvitað dapurlegt og það er merki um hægagang að árið 2021, á fyrri hluta 21. aldar, skuli umhverfisráðherra þurfa að vera í hlutverki andófsmanns. Það er eiginlega það sem er sárgrætilegt við þessa stöðu og það veldur mér auðvitað áhyggjum, eins og ég var að lýsa hér áðan, að Sjálfstæðisflokkurinn með sína stefnu í umhverfis- og loftslagsmálum sé kominn í þetta ráðuneyti. Að sjálfsögðu veldur það áhyggjum, ekki vegna þess að ég haldi að nýr ráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, verði ekki duglegur í sínu ráðuneyti. Ég er hrædd um að hann verði allt of duglegur á röngum forsendum og það færi okkur ekki þann árangur sem við þurfum.

Hv. þingmaður vísar í setu mína í ráðuneytinu fyrir nokkrum árum. Það var auðvitað alveg rétt, það var átak og það krafðist andófs og krafðist mikillar þyngdar af hálfu Samfylkingarinnar að fá Sjálfstæðisflokkinn þá til að láta af undanþágustefnunni, sem við kölluðum svo, í loftslagsmálum, að hætta að tala eins og að Ísland þyrfti ekkert að gera. Sem betur fer erum við komin af þeim stað. En við heyrum samt enn þá hæstv. ráðherra í þessari ríkisstjórn, þessari glænýju ríkisstjórn, vitna í hitaveituframkvæmdirnar eins og það sé það sem við getum enn byggt á. Við erum búin að fá það sem okkur bar og miklu meira fyrir hitaveituframkvæmdirnar í loftslagssamningum. Það er allt annað sem við eigum að vera að gera. En það vantar — ég veit ekki hvernig ég á að orða það — það er alltaf verið að skreyta sig með, ekki stolnum fjöðrum í þessu tilviki, heldur gömlum og lúnum fjöðrum. Við þurfum að hætta því.