fjárlög 2022.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir góða yfirferð og umfjöllun. Ég staldraði strax við upphaf ræðunnar um hvar auðurinn verður til í samfélaginu og er sammála mati hennar á því að þess sé nú kannski ekki að vænta að stórtækar breytingar verði á því.
En ég er upptekin af þeirri upplifun minni að hafa setið í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd á síðasta þingi þar sem var til umfjöllunar frumvarp forsætisráðherra um breytingar á stjórnarskrá. Veigamikil, þýðingarmikil breyting hefði verið nýtt auðlindaákvæði. Þar lágu línur og átakalínur, vil ég leyfa mér að segja, mjög ljósar fyrir, hvort þingið væri viljugt til að skilgreina orðið þjóðareign í stjórnarskránni sjálfri þannig að orðið fái einhverja merkingu, einhverja þýðingu, hvað það þýðir að auðlind sé í þjóðareigu og hvaða merkingu það á að hafa út í samfélagið allt. Þar hefur auðvitað áhrif hver er eðlileg, réttlát og sanngjörn gjaldtaka sem spegli þau skilaboð út í samfélagið að gjaldtakan taki einmitt mið af því að hér er um þjóðareign að ræða en sé þó hóflega fram sett þannig að fyrirtækjum í greininni vegni vel. Svo hitt atriðið um tímabindingu samninga til þess að árétta að vegna þess að auðlindin er í þjóðareigu er fyrirtækjum ekki falið eignarhald, heldur að fá afnot og umráð í afmarkaðan tíma. Það kom síðan í hlut Vinstri grænna sjálfra að slátra þessu frumvarpi. Kolbeinn Óttarsson Proppé talaði mjög greinilega og skýrlega fyrir því í nefndinni að málið væri ekki komið fram. Hverjar eru væntingar þingmannsins til breytinga í þessum efnum á þessu kjörtímabili í ljósi orða um stjórnarskrá í stjórnarsáttmála?