fjárlög 2022.
Hæstv. forseti. Það er auðvitað alveg rétt sem hv. þm. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir bendir á, að ríkisstjórnin gamla bjó þannig um hnútana, og það var bara augljóst um leið og ljóst var að það var einn ráðherra á frumvarpinu, að það væri þá ekki hægt að kenna þinginu um að hafa ekki haft þrek til að klára frumvarpið og klára tillögurnar. Það var algjörlega ljóst öllum þeim sem fylgjast með og hafa fylgst með þessum málum.
Mig langar líka að nota tækifærið núna og taka undir orð þingmannsins um mikilvægi þess að gefa hugtakinu þjóðareign inntak og merkingu og að auðlindaákvæði sé komið í stjórnarskrá og það sé orðað þannig að það sé algerlega skýrt. Ég hef frá upphafi starfa minna fyrir Samfylkinguna sem stjórnmálaflokk talað fyrir þjóðareign auðlinda, fyrir því að innkalla veiðiheimildir og bjóða þær upp á markaði, fyrir að gera það með þeim hætti að við sýnum að við getum gert þetta. Þetta hefur verið gert í nágrannalöndum okkar og það er hægt að gera þetta. En það hefur auðvitað verið við römm hagsmunaöfl að eiga og þau sömu hagsmunaöfl eiga marga talsmenn í pólitík og á Alþingi og ég geng þess ekkert dulin. En hugsum okkur, hæstv. forseti, ef við hefðum farið af stað um síðustu aldamót, t.d. með innköllun veiðiheimilda og uppboð þeirra um nokkur prósent á ári þá værum við langt komin með að leiðrétta þetta grundvallardeilumál í íslensku samfélagi, værum jafnvel búin að leysa það.