fjárlög 2022.
Herra forseti. Ég bað um að fá hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra hér til að svara nokkrum spurningum sem ég mun koma fram með í lok ræðunnar. En fyrst má ég til með að taka aðeins upp þráð sem við ræddum í gærkvöld varðandi það sem forsætisráðherra kallar aukinn sveigjanleika Stjórnarráðsins og aðgerðir í þá átt. Ég held að við getum öll verið sammála um að það sé af hinu góða að Stjórnarráðið sé dálítið sveigjanlegt, að það sé hægt móta ráðuneyti að verkefnum dagsins og brjóta niður þessi síló, sem við köllum stundum, ég á svolítið erfitt með það samt af því að þá dettur mér alltaf í hug súrheysturnarnir í sveitinni. En þetta er víst það sem við köllum þetta. Og þetta þarf að gera. Við sjáum það í nágrannalöndunum að þar eru stjórnarráðin gjarnan kvikari, það er hægt að hólfa þau af eftir því hvernig pólitíkin kallar á, en þá er líka búið að byggja grunn undir þær breytingar. Það er búið að byggja lagagrundvöll undir það hvernig þær breytingar fara fram, hvernig samráð við starfsfólk fer fram, á hvaða grundvelli þetta er allt saman. Forsætisráðherra segir svo sem að hún vilji endurskoða lög um Stjórnarráðið, en bara seinna. Fyrst ætlar hún að breyta, svo vill hún búa til lagagrundvöllinn undir það að slíkar breytingar geti verið það sem gengur og gerist. Þarna er augljóslega byrjað á öfugum enda. Það er byrjað á því að færa þriðjung Stjórnarráðsins og verkefni á milli ráðuneyta og bara á pólitískum forsendum að því er virðist. Þetta kemur fólki svo mikið á óvart að það er ekki einu sinni gert ráð fyrir launum nýs ráðherra í fjárlagafrumvarpinu sem sama fólkið leggur fram og leggur þessar tillögur til.
Ég vil meina, herra forseti, að þetta sé dulítil breyting í afstöðu forsætisráðherra vegna þess að til þessa hefur hún ekki viljað líta á Stjórnarráðið sem einingu heldur sem þessi stök sem ráðuneytin eru. Þar langar mig að rifja upp svar sem barst við fyrirspurn frá Þorsteini Víglundssyni um jafnlaunavottun Stjórnarráðsins. Þegar þingið afgreiddi lög um jafnlaunavottun og vissi að með þeim reglum væri verið að setja auknar kvaðir á fyrirtæki og stofnanir þá sögðum við hér á þinginu: Við skulum bara ganga fram með góðu fordæmi. Látum þingið vera í fyrstu innleiðingarlotu og látum Stjórnarráðið líka vera það og bætum um betur og látum Stjórnarráðið jafnlaunavotta sig sem einingu vegna þess að kynbundinn launamunur í Stjórnarráðinu birtist ekki bara innan ráðuneyta heldur milli þeirra vegna þess að sum þeirra þykja merkilegri en önnur og kynjakerfið spilar inn í það. Svarið barst frá forsætisráðherra og þar segir, með leyfi forseta:
„Eins og kunnugt er er ríkisstjórn Íslands ekki fjölskipað stjórnvald og telst hvert ráðuneyti fyrir sig sérstök stofnun og sérstakt stjórnvald …
Samkvæmt framangreindu voru ekki lagalegar forsendur til að fylgja áherslum meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar sem fram koma í nefndaráliti um málið og vísað er til að framan.“
Alþingi sagði í nefndaráliti og í breytingartillögu að þetta ætti að gera. Forsætisráðherra sagði bara: Nei, sorrí, það eru auðvitað síló, við getum ekki gert neitt. En ókei, nú er komið annað hljóð þaðan, en það er þegar sveigjanleikinn snýst um frelsi ráðherra til að ráðskast með starfsfólk og verkefni. Ég vil miklu frekar að við ræðum t.d. frelsi starfsfólks til að færa sig innan þessarar 700 manna einingar sem Stjórnarráð Íslands er af því að það hefur verið allt of lítið. Það hefur verið heimild í lögum árum saman, áratugum jafnvel, að fara á milli ráðuneyta og það gæti verið mjög góður liður í starfsþróun einstaklinga. En ég held að hinn kynbundni launamunur sem er á milli ráðuneyta sé t.d. ein hindrunin og margar aðrar ástæður. Þess vegna þarf að byrja á réttum enda og breyta regluverkinu um Stjórnarráðið áður en lagst er í allsherjarendurskipulagningu eins og nú er fyrir dyrum. — Svo ræddum við dálítið í gær kostnaðinn við þetta. Hv. þm. Helga Vala Helgadóttir rifjaði upp þegar velferðarráðuneytinu var skipt upp í félagsmálaráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti, það hefði kostað 70 milljónir. Svo gerði ég mér það til leiks að fletta upp fyrirspurn frá 2010 frá þáverandi hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni þar sem hann spurði um heildarkostnað ríkissjóðs af breytingum á heitum ráðuneyta, engar skipulagsbreytingar, bara breytingar á heitum ráðuneyta. Samkvæmt svari fjármálaráðherra þess tíma voru það rúmlega 3 millj. kr. sem dreifðust á fjögur ráðuneyti sem fengu nýtt nafn til að endurspegla betur pólitískar áherslur. Sá kostnaður lá að mestu í breytingum á merkingum og skiltum, bréfsefni, nafnspjöldum og kveðjukortum, það þurfti að kaupa nýja stimpla og það þurfti að breyta heimasíðu og málaskrám og alls konar. Þetta er náttúrlega í stóra samhenginu lítill kostnaður og kannski helst táknrænn en þetta hefur ekkert verið skoðað, ekkert af þessu. Ein af þeim breytingum sem er lögð til með núverandi ríkisstjórn er að breyta heiti dómsmálaráðuneytisins í innanríkisráðuneyti án þess að nokkuð breytist í innvolsinu. Þar fer milljón út um gluggann til einskis. Það á að setja nýjan ráðherra í embætti, búa til stól undir einn ráðherra í viðbót til að stjórnarflokkarnir geti viðhaldið réttu valdajafnvægi innan ríkisstjórnarinnar. Hvað kostar einn ráðherra? Hann kostar 25 millj. kr. á ári, bara í laun. Það er vel að merkja sama upphæð og var tekin af Samtökunum ‘78 þegar þau voru felld út úr fjárlagafrumvarpinu enn eitt árið í röð. Ég ætla bara að segja það, herra forseti, að ég vil frekar hafa Samtökin ‘78 á fjárlögum en að rembast við að fjölga ráðherrum til að Framsókn geti sest á fleiri stóla, ótrúlegt en satt.
Svo skulum við ekki gleyma því að þær breytingar sem er núna verið að vinda ofan af í Stjórnarráðinu sem voru gerðar í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur voru ekkert út í loftið heldur voru þær hluti af stjórnarsáttmála þeirrar ríkisstjórnar. Þar var heill kafli um stjórnkerfisumbætur það sem átti að fækka ráðuneytum og efla þau til að ráða betur við verkefni sín og þar sagði, með leyfi forseta:
„Víðtækt samráð verður haft við starfsfólk, almenning og hagsmunaaðila og leitast við að skapa almennan skilning og samstöðu um nauðsyn þessara breytinga.“
Svo var kjörtímabilið allt nýtt í að gera þessar breytingar. Þannig á að gera þetta ekki kasta til höndunum eins og ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur vill gera.
Svo ég vendi kvæði mínu í kross og beini orðum mínum að hæstv. ráðherra varðandi loftslagsmálin sérstaklega: Í síðustu fjármálaáætlun voru framlög til loftslagsmála aukin, of lítið reyndar, að mínu mati, en þau voru aukin til að bregðast við því að sameiginlegt markmið ESB og Íslands um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda hækkaði úr 40 upp í 55%. Í stjórnarsáttmálanum er síðan boðað að metnaðurinn verði enn aukinn, úr 55% sameiginlega með Evrópusambandinu upp í 55% sjálfstætt markmið Íslands, sem kallar væntanlega á meiri aðgerðir. Mig langar að vita hvers vegna þess sér ekki stað í fjárlagafrumvarpinu. Ætlar ráðherra að gera tillögu að auknum fjárheimildum til loftslagsmála milli umræðna eða þykir honum fyrirliggjandi framlög duga? Hvernig ætlar ráðherrann að fylgja stjórnarsáttmálanum eftir hvað nýtt landsmarkmið varðar á komandi ári? Verða markmiðin um 55% sjálfstæðan samdrátt í losun lögfest eins og væri eðlilegt til að halda stjórnvöldum almennilega við efnið eða verður aðgerðaáætlun ríkisstjórnar í loftslagsmálum uppfærð og þá hvenær?