152. löggjafarþing — 5. fundur,  4. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[13:10]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að mér fannst það spennandi á sínum tíma þegar forsætisráðherra tók jafnréttismálin inn í sitt ráðuneyti. Á sama tíma hafði ég ákveðnar áhyggjur af því vegna þess að forsætisráðherrann er kannski í hlutverki verkstjórans í ríkisstjórninni og það á að vera fullt starf í sjálfu sér. En svo sér maður hvernig úr þessu hefur spilast þegar ráðherrann er með málaflokkinn hjá sér en síðan þegar koma upp mál sem tengjast málaflokknum þá er bent á þá ráðherra sem í reynd eru birtingarmynd jafnréttispólitíkur ríkisstjórnarinnar. Ég er þar með í huga dómsmál þáverandi menntamálaráðherra sem rekur dómsmál í nafni íslenska ríkisins gagnvart konu sem leitaði réttar síns og kærunefnd jafnréttismála og héraðsdómur hafa talið að á henni hafi verið brotin lög. Í því samhengi virðist forsætisráðherra ekki vera ráðherra jafnréttismála því að hún hefur enga afstöðu tekið til málsins og hæstv. forsætisráðherra hefur held ég alltaf svarað fyrirspurnum fjölmiðla, almennings og hér inni í þingsal með þeim hætti að þetta sé mál menntamálaráðherrans. Með því kemur einhvern veginn furðulegur hljómur í jafnréttispólitík ríkisstjórnarinnar.

Ég velti því fyrir mér hvað muni þá gerast núna þegar hluti mannréttindamálanna er líka kominn til forsætisráðherrans en á sama tíma erum við með stóra málaflokka í félagsmálaráðuneytinu, vitaskuld í dómsmálaráðuneytinu og mörgum öðrum ráðuneytum líka. Hvort þetta verði (Forseti hringir.) aftur þetta tvíhöfða element sem ég var að lýsa hér í fyrra svari, fyrri spurningu.