152. löggjafarþing — 5. fundur,  4. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[13:36]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að ég sé búinn að finna planið um að auka framleiðnina. Það felst í því reyndar að minnka ásóknina. Það er nefnilega verið að skera niður í markaðssetningu Íslands á erlendri grundu, ef við skoðum það í fjárlögunum. Það þýðir náttúrlega að við fáum færri ferðamenn til landsins. Það er smávegis annað í því, það er skorið niður í öryggismálum ferðamanna, en svokallað Safetravel-prógramm, sem hefur bjargað mörgum mannslífum, fer niður um 5 milljónir, þannig að kannski vegur það upp á móti.

Hv. þingmaður nefndi líka starfsfólkið. Ég myndi segja að margt af því starfsfólki sem vinnur í heilbrigðisgeiranum í dag vinni hér á Íslandi af einskærri þjóðrækni, en því eru boðin betri laun,(Forseti hringir.) betri vinnutími og betri aðstæður erlendis. Það hefur þau tækifæri. Hvað getum við gert til að tryggja að við höldum þessu fólki hér heima? (Forseti hringir.) Um 2.000 heilbrigðisstarfsmenn hafa flutt úr landi á undanförnum tíu árum.