152. löggjafarþing — 5. fundur,  4. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[13:39]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það hefur verið áhugavert að fylgjast með orðaskiptum hér í dag. Mér fannst sérstaklega áhugavert að hlusta á hæstv. umhverfisráðherra hrósa sjálfum sér fyrir mætingu. Mér finnst það vel gert hjá honum að vera mættur í umræðu um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar sem hann situr í. Þeir hafa ekki verið margir, ráðherrarnir, í þessum sal í dag. Ráðherrann viðurkenndi það fúslega að hann mætti líka til leiks með engin svör og var með hjal um að vegir þingsins væru órannsakanlegir. Jólahugvekja hæstv. ráðherra. (Gripið fram í.)

En ég ætlaði nú ekki að ræða um hugvekju heldur orð hv. þingmanns um málefni fatlaðra, því að þar finnst mér líka skipta máli jafnréttishugtakið og sýn okkar á hvað það felur í sér. Kannski þurfum við einfaldlega að fullgilda það hugtak. Okkur er tamt að tala um jafnrétti, og jafnrétti t.d. út frá hagsmunum kynjanna. En þetta er breiðara hugtak og þar undir hljóta að falla jöfn tækifæri og aðgengi fatlaðs fólks líka.