152. löggjafarþing — 5. fundur,  4. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[13:41]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir góðar athugasemdir. Ég tek heils hugar undir þetta. Ég held að t.d. fjölgun samninga um notendastýrða persónulega aðstoð sé eitthvert stærsta einstaka frelsismálið á Íslandi í dag og það varðar félagsleg réttindi. Sjálfstæðismenn tala oft voða mikið um frelsi, tala um litlu frelsismálin; áfengi í búðir og eitthvað slíkt. En þetta er stóra frelsismálið, að fjölga samningum um notendastýrða persónulega aðstoð, gera fólki með fötlun kleift að lifa með reisn.