152. löggjafarþing — 5. fundur,  4. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[13:44]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir áhugaverða ræðu hér áðan. Ég hjó eftir nokkrum atriðum, t.d. að þingmaðurinn nefndi samning um réttindi fatlaðs fólks og meintar fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar að lögfesta hann. Það hefði í för með sér breytingar sem þarf að gera á lögum o.fl. sem ég er ekki viss um að sé vilji hjá þessari ríkisstjórn til að fara í. Þá er ég kannski helst að hugsa um hluti eins og t.d. að það þarf að gera breytingar á lögum um lögræði þar sem samningurinn tekur fyrir það að fólk sé frelsissvipt vegna fötlunar sinnar. Mig langar að spyrja þingmanninn hvort hann telji raunhæft að þetta geti orðið að veruleika eða hvort allt tal um þetta séu orðin tóm.